Vilja syni og eiginmenn lausa 20. mars 2010 01:15
Undanfarna daga hefur hópur kvenna á Kúbu krafist þess að synir þeirra, eiginmenn og aðrir ástvinir verði látnir lausir úr fangelsi. Þeir voru handteknir fyrir sjö árum fyrir andóf gegn stjórnvöldum. Konurnar hafa efnt til mótmælaaðgerða í höfuðborginni Havana daglega síðan á mánudag, en á fimmtudag voru sjö ár liðin frá því mennirnir voru handteknir. Þann dag mættu jafnframt hundruð stuðningsmanna stjórnarinnar til leiks, umkringdu konurnar og gerðu hróp að þeim en leyfðu þeim þó að halda áfram göngu sinni. Lögreglumenn stóðu einnig vörð um konurnar til að tryggja að þær kæmust ferða sinna. Andófsmennirnir handteknu eru 75 og sitja allir enn í fangelsi. Þeir voru handteknir þegar stjórn Fidels Castro barði niður mótmælaöldu, sem stjórnin sagði vera runna undan rifjum Bandaríkjanna. Einn andófsmannanna, Orlando Zapata Tamayo, lést í síðasta mánuði eftir langt hungurverkfall. Lát hans vakti hörð viðbrögð á Vesturlöndum. Evrópuþingið hefur fordæmt stjórnina vegna láts hans og nú hefur hópur mennta- og listamanna á Vesturlöndum, þar á meðal spænski leikstjórinn Pedro Almadovar, efnt til undirskriftasöfnunar gegn Kúbustjórn.- gb
Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Innlent Ari þiggur stöðu stjórnarformanns Innlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda Innlent Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Barn réðst með belti á önnur börn Innlent NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Innlent Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Fleiri fréttir Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Sjá meira