Fótbolti

Viking vill halda Birni Daníel

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Björn Daníel hefur farið vel af stað með Viking í ár.
Björn Daníel hefur farið vel af stað með Viking í ár. vísir/getty
Viking Stavanger vill framlengja samning Björns Daníels Sverrissonar við félagið. Þetta kemur fram í frétt Dagsavisen.

Þar kemur fram að norska liðið vilji halda Birni Daníel í sínum herbúðum en samningur hans rennur út eftir tímabilið.

Í frétt Dagsavisen er haft eftir Magnúsi Agnari Magnússyni, umboðsmanni Björns Daníels, að viðræður um nýjan samning við Viking hafi átt sér stað.

Björn Daníel kom til Viking frá FH í upphafi árs 2014 og hefur síðan þá leikið 47 deildarleiki með liðinu. Hann missti af stórum hluta tímabilsins í fyrra vegna meiðsla en hefur hins vegar komið sterkur til baka og byrjað tímabilið í ár af miklum krafti.

Björn Daníel hefur skorað tvö mörk og átt eina stoðsendingu í fyrstu 10 leikjum tímabilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×