Handbolti

Vignir danskur bikarmeistari

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Vignir skoraði þrjú mörk í bikarúrslitaleiknum.
Vignir skoraði þrjú mörk í bikarúrslitaleiknum. vísir/valli
Vignir Svavarsson varð nú rétt í þessu danskur bikarmeistari í handbolta með liði sínu Midtjylland.

Vignir og félagar unnu fjögurra marka sigur á GOG, 30-26, í úrslitaleik í Arena Fyn í Óðinsvéum.

Sigurinn var öruggari en tölurnar gefa til kynna en Midtjylland var níu mörkum yfir, 26-17, þegar 10 mínútur voru til leiksloka.

Vignir skoraði þrjú mörk fyrir Midtjylland í dag og fékk auk þess tvær brottvísanir. Kasper Gudnitz var markahæstur í liði Midtjylland með sex mörk.

Vignir færir sig um set eftir tímabilið en hann er búinn að semja við Team Tvis Holstebro sem Midtjylland vann einmitt í undanúrslitunum í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×