Viðbúin nýjum hættum

Fréttablaðið Fastir pennar 03. febrúar 2012 06:00
Viðbúin nýjum hættum
Ólafur Þ. Stephensen skrifar:
Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórnarráðshúsið, hefur náð að koma inn ónotatilfinningu hjá mörgum þótt hún hafi hvorki valdið meiðslum né eignatjóni. Ísland er friðsamt samfélag, þar sem enginn gerir ráð fyrir að sprengjur springi við opinberar byggingar. Við höfum heldur ekki átt því að venjast að fólk grípi til ofbeldisverka til að undirstrika pólitískar skoðanir sínar. Það hefur þó breytzt á allra síðustu árum.

Þótt ófundni sprengjumaðurinn hafi að mati lögreglunnar kunnað eitthvað fyrir sér í sprengjugerð virðist viðvaningur hafa verið á ferðinni. Sprengjan hefði samt getað valdið skaða, hefði einhver verið á ferli þar sem hún sprakk. Í sumum nágrannalöndum okkar hefur friðurinn verið rofinn með miklu óþyrmilegri hætti með banvænum sprengjutilræðum. Sprengingin mikla í Ósló í fyrra er fólki í fersku minni. Fyrr í vikunni sprakk öflug sprengja við lögreglustöð í Malmö í Svíþjóð og olli tjóni. Grunur leikur á að skipulögð glæpagengi hafi staðið fyrir því sprengjutilræði.

Þegar greiningardeild ríkislögreglustjóra mat hættuna af hryðjuverkum á Íslandi fyrir þremur og hálfu ári var fyrst og fremst fjallað um alþjóðlega hryðjuverkastarfsemi. Eins og reynsla Norðmanna og Svía sýnir þarf ekki síður að hafa augun á glæpa- og ofstækismönnum innanlands.

Fréttablaðið sagði frá því í gær að lögreglan gæti ekki fylgzt með einstaklingum eða hópum sem líklegir eru til að vera að sanka að sér efniviði og búnaði til sprengjugerðar. Greiningardeildin benti í hættumatinu á sínum tíma á að möguleikar lögregluyfirvalda á Íslandi til að fyrirbyggja hryðjuverk væru ekki þeir sömu og á hinum Norðurlöndunum, vegna þess að svokallaðar forvirkar rannsóknarheimildir skorti. „Þessu fylgir einnig að lögreglan hérlendis hefur mun takmarkaðri upplýsingar um mögulega ógn eða hættulega einstaklinga, sem kunna að fremja hryðjuverk," sagði í hættumatinu. Frumvarp um auknar heimildir lögreglunnar er nú til meðferðar í þingflokkum stjórnarflokkanna. Atvikið á Hverfisgötunni, ásamt með auknum vopnaburði og ofbeldi í undirheimunum sem fylgir vexti skipulagðrar glæpastarfsemi, ætti að vera þingmönnum hvatning til að hraða meðferð þess máls.

Lögreglan brást seint við ábendingu um sprenginguna á þriðjudagsmorguninn. Mistökin sem urðu þá þarf að rannsaka og upplýsa. Hins vegar tóku lögreglan og sprengjusveit Landhelgisgæzlunnar málið föstum tökum eftir að alvara málsins komst á hreint. Það er traustvekjandi að sjá að löggæzlan á búnað til að fást við slík atvik og fólk sem kann að nota hann.

Lögreglan á að leggja áherzlu á að upplýsa málið sem fyrst. Það er svo stjórnmálamannanna að tryggja að löggæzlustofnanir landsins hafi mannskap, búnað og lagaheimildir til að taka á nýjum hættum sem steðja að öryggi fólks.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 26. maí. 2012 06:00

Bankablús

Viðbúið var að rekið yrði upp margraddað ramakvein þegar Landsbankinn tilkynnti um uppsagn...  

Meira
Fastir pennar 26. maí. 2012 06:00

Á Heimaey betur heima í ríkissjóði?

Ný Heimaey í eigu Ísfélagsins kom fyrir skömmu til heimahafnar í Vestmannaeyjum. Margir hr...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 12:53

Útlendingar og Íslendingar

Stjórnarfar í Kína er ömurlegt. Sérstaklega læt ég ógeðslega ritskoðunartilburði fara í ta...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhæfa planið

Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Viðbúin nýjum hættum