Fótbolti

Viðar Örn getur ekki hætt að skora | Elías Már einnig á skotskónum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Viðar Örn Kjartansson.
Viðar Örn Kjartansson. vísir/getty
Viðar Örn Kjartansson skoraði eina mark leiksins þegar Malmö hafði betur gegn Sundsvall í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Markið gerði hann á 64. mínútu leiksins en Viðar Örn hefur núna skorað 14 mörk í deildinni og er hreinlega sjóðandi heitur.

Elías Már Ómarsson skoraði síðan eitt mark þegar Gautaborg vann Helsingborg, 2-0.

Elías skoraði fyrsta mark á fyrstu mínútunni og það var síðan Jakob Ankersen sem gerði annað mark Gautaborgar. Malmö er í efsta sæti deildarinnar með 45 stig en IFK Gautaborg er í því fjórða með 35 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×