Fótbolti

Viðar Örn: Þeir eru að verðlauna mig fyrir tímabilið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Viðar er kominn með flottan samning og aldrei að vita nema hann fari í stærri deild í janúar.
Viðar er kominn með flottan samning og aldrei að vita nema hann fari í stærri deild í janúar. Vísir/Vilhelm
„Það eru nokkrir dagar síðan þetta var frágengið og pínu erfitt að þegja yfir þessu,“ segir framherjinn Viðar Örn Kjartansson sem skrifaði undir nýjan samning við Vålerenga í gær sem gildir til ársins 2018.

Viðar Örn var langmarkahæsti leikmaður norsku úrvalsdeildarinnar á nýliðinni leiktíð og er því að hækka sig talsvert í launum. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins skrifaði hann undir einn stærsta samning sem Íslendingur hefur gert í Noregi.

„Þetta er mjög góður samningur. Ég get ekki kvartað. Það var ekki hægt að segja nei við þessu tilboði. Þeir eru að verðlauna mig fyrir tímabilið og var gaman að sjá að þeir voru til í að gera allt til þess að halda mér,“ segir Selfyssingurinn.

Þó svo hann sé búinn að binda sig til næstu ára er alls ekki víst að hann verði í herbúðum félagsins á næstu leiktíð. Það er mikill áhugi á honum frá liðum úti um allan heim og meðal annars frá Kína. Því er hugsanlegt að hann verði keyptur frá Vålerenga í janúar en ljóst er að hann verður ekki ódýr.

„Ég fer ekki hvert sem er. Ef rétta tilboðið og liðið kemur þá auðvitað stekkur maður á það. Ég hef aldrei farið leynt með metnað minn um að spila í stærri deild. Ef ekki þá er ég mjög ánægður hjá Vålerenga og mun spila glaður hér áfram ef þannig fer. Þetta er lið sem hentar mér vel. Hér gekk mér vel og við ætlum okkur enn stærri hluti á næstu leiktíð. Við vitum að við getum betur og stefnan er að sanna það á næsta tímabili.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×