Verzlingar munu fá slúðrið beint í símann Stefán Ó. Jónsson skrifar 25. júní 2015 13:17 Smáforritið minnir óneitanlega á hina sívinsælu þætti Gossip Girl. Vísir
Verzlunarskólanemar mega búast við því á næsta skólaári að geta nálgast smáforrit sem sendir þeim allt nýjasta slúðrið innan veggja skólans beint í farsímann þeirra. Að smáforritinu stendur slúðurblað skólans en Kristófer Karl Jensson, einn af forsprökkum blaðsins, segir að búið sé að útvega forritara og að appið fari líklega í þróun í næstu viku. „Þessi hugmyndin poppaði bara upp og okkar fannst hún fyndin og sniðug en pælingin var í rauninni að fá bara smá slúðurmenningu í skólann,“ segir Kristófer. Verzlingum muni gefast færi á að senda nafnlaust slúður í gegnum smáforritið sem þeir áframsendi svo á alla nemendur sem hafa náð sér í forritið. Kristófer segir að þeir muni þó ritskoða allt það sem sent verður út með appinu svo að það fari ekki út fyrir öll velsæmismörk, jafnvel í samráði við skólastjórnendur en það hefur ekki verið ákveðið að svo stöddu. Þá verði þeir einstaklingar sem eiga í hlut ekki nafngreindir heldur verður einungis gefið út í hvaða bekk viðkomandi er. „Það gerir þetta meira mysterious og skemmtilegt og það fær fleiri til að pæla í þessu,“ segir Kristófer. Aðspurður um mikilvægi sannleikgildis slúðursins segir hann það ekki vera aðalatriðið. „Nei, það skiptir engu máli. Okkur er alveg sama. Það er bara skemmtilegra ef þetta er eitthvað kjaftæði.“ Einungis Verzlingum mun standa þetta smáforrit til boða, sem ekki hefur fengið nafn ennþá, og býst Kristófer við því að senda lykilorð á nemendur skólans með haustinu.
Mest lesið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Britney ákærð fyrir ölvunarakstur Lífið Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Lífið Fleiri fréttir Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Sjá meira