Verður að loka torrent.is 19. nóvember 2007 15:25 Svavar Lúthersson þarf að loka torrent.is.
Sýsulmaðurinn í Hafnarfirði hefur fallist á lögbannsbeiðni á starfsemi skráardeilingarsíðunnar torrent.is sem nokkur höfundarréttarsamtök lögðu fram fyrr í dag. Það voru Samtök myndrétthafa á Íslandi, SÍK (Framleiðendafélagið), Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar og Félag hljómplötuframleiðenda sem fóru fram á lögbannið á vefnum og var eigandi torrent.is., Svavar Lúthersson, kallaður til yfirheyrslu hjá sýslumanninum í Hafnarfirði í morgun vegna þessa. Sýslumaðurinn féllst svo á það að loka ætti vefnum og hafði eigandinn frest til hálffjögur til þess að gera það. Það hefur hann þegar gert. Sýslumaður féllst hins vegar ekki á kröfu höfundarréttarsamtakanna um að tölvurnar sem notaðar eru í tengslum við torrent.is yrðu gerðar upptækar á meðan málið er fyrir dómi. Höfundarréttarsamtökin verða svo að höfða staðfestingarmál vegna lögbannsins fyrir dómi innan viku en þar reynir einnig á efniskröfur samtakanna. Þau saka eiganda torrent.is um að auðvelda og stuðla að höfundarréttarbrotum með því að heimila skráarskipti á torrent.is. Brotin snúi að ólöglegu niðurhali á sjónvarpsþáttum, tölvuleikjum, tónlist og innlendum og erlendum kvikmyndum sem séu höfundaréttarvarin.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent Fleiri fréttir Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Sjá meira