Vegtollar út frá Reykjavík í skoðun 28. október 2009 18:34
Vegtollur á allar stofnbrautir út úr Reykjavík, Suðurlandsveg, Vesturlandsveg og Reykjanesbraut, er nú til skoðunar í viðræðum stjórnvalda og lífeyrissjóða um fjármögnun á breikkun Suðurlandsvegar.Í viðræðunum liggur þegar fyrir sú forgangsröðun að breikkun Suðurlandsvegar milli Lögbergsbrekku og Selfoss verði fyrst á dagskrá en síðan komi Vaðlaheiðargöng og þar á eftir breikkun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi. Enn síðar verði Sundabraut og tvöföldun Hvalfjarðarganga.Hugmyndin er að lífeyrissjóðir láni til verkefnanna en fái endurgreitt með vegtollum, eins og tíðkast í Hvalfjarðargöngum. Við nánari skoðun hafa menn hallast að því það gæti verið hæpið út frá jafnræðissjónarmiðum, og pólitísk erfitt, að fá Sunnlendinga til að sætta sig við vegtoll á Suðurlandsvegi en sleppa honum á sama tíma á nýbreikkaðri Reykjanesbraut.Indriði H. Þorláksson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, staðfestir að þetta sjónarmið sé í umræðunni, að óeðlilegt sé að veggjald færi eingöngu á Suðurlandsveg, heldur gæti verið eðlilegra að það færi þá á allar stofnbrautir út frá Reykjavíkursvæðinu, og þá einnig á Reykjanesbraut og Vesturlandsveg. Indriði tekur fram að ekkert sé ákveðið í þessum efnum og engin stefna hafi verið mörkuð í þessa veru.Veggjald yrði einnig tekið upp við Vaðlaheiðargöng.Ekkert liggur fyrir um fjárhæðir veggjalda né innheimtuform en sérfræðingum fjármálaráðuneytis hefur verið falið að útfæra þessar hugmyndir nánar.
Mest lesið Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Innlent Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Fleiri fréttir Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Almenningur ekki talinn eiga rétt á upplýsingum um ETS-sérlausn Barn réðst með belti á önnur börn Hæstiréttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meiðyrðamál Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Ferðum Íslendinga til útlanda fækkar Hvetur almenning til að vera á varðbergi Náttúruminjasafn og Náttúrufræðistofnun renna saman Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Sjá meira