Sport

Veðjar 215 milljónum á sigur Mayweather

50 Cent eða Fitty eins og við köllum hann.
50 Cent eða Fitty eins og við köllum hann. vísir/getty
Bandaríski rapparinn 50 Cent er fullviss um að Floyd Mayweather muni vinna Manny Pacquiao í maí og mun veðja alvöru peningum á þennan bardaga.

Nánar tiltekið ætlar Fitty að leggja 215 milljónir undir á sigur Mayweather. Vinni Mayweather mun rapparinn yfirgefa svæðið með 310 milljónir í rassvasanum.

„Meistarinn mun klára þetta. Hann á eftir að „reykja" Manny. Eftir bardagann verða menn að klóra sér í hausnum yfir því af hverju þetta hefði átt að vera spennandi," sagði Fitty.

Það eru nokkur tíðindi að 50 Cent sé farinn að styðja Mayweather á ný. Þeir hafa rifist í fjölmiðlum síðustu daga og rapparinn gerði mikið grín að Mayweather þar sem hann kynni ekki að lesa.

50 Cent lofaði þá að gefa 100 milljónir til góðgerðarmála ef Mayweather tækist að lesa eina síðu í Harry Potter-bók.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×