Vaskasti uppvaskarinn í Fífunni 31. mars 2006 17:13 MYND/Stefán
Keppnisskapið var allsráðandi í Fífunni í Kópavogi í dag þar sem bestu uppvaskarar landsins börðust um titilinn vaskasti uppvaskarinn. Keppnin er liður í stórsýningunni Matur 2006, en þar leiða einnig fjölmargir innlendir og erlendir matreiðslumenn saman hesta sína í fjölbreyttri keppni. Sýningin hófst í gær en á henni kynna innlend matvælafyrirtæki starfsemi sína og framleiðslu. Keppnir af ýmsu tagi setja líka svip sinn á sýninguna og strax í gær reyndu matreiðslu- og framleiðslunemar með sér og matreiðslumaður ársins var valinn. Í dag héldu hátíðahöldin áfram þar sem meðal annars með forkeppni Íslandsmóts kaffibarþjóna og fagkeppni meistarafélags kjötiðnaðarmanna. Í þeirri síðarnefndu senda menn inn vöru með nafnleynd og það er dómara að skera úr um hvaða vara er best. Auk þess kepptu ungir matreiðslunemar á Norðurlöndum um titilinn Norðurlandameistari matreiðslunema. Einna mesta athygli vekur hins vegar keppnin Vaskasti uppvaskarinn, sem haldin var í dag. Þar reyndu 14 bestu uppvaskarar landsins með sér, en þeir starfa á ólíkum vinnustöðum, allt frá Alcan til Skólabrúar. Í keppninni gilti að vera röskur en gæta þess þó að missa ekki neitt í gólfið, því slíkt gaf refsistig. Sigurvegarinn í keppninni fer ásamt fjórum öðrum, sem mynda landslið Íslands í greininni, til keppni á Norðurlandamótinu í uppvaski í næsta mánuði. Sýningin er opin almenningi um helgina er þá verður meðal annars álfukeppni matreiðslumanna, ommilettukeppni og ostrukeppni. Matgæðingar ættu því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í Fífunni um helgina.
Fréttir Innlent Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtisöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Erlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Innlent Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Erlent Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Innlent Fleiri fréttir Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtisöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Sjá meira