Sport

Varnartröll Í NFL-deildinni fór grátandi af velli í nótt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Luke Kuechly var niðurbrotinn þegar hann var keyrður út af vellinum.
Luke Kuechly var niðurbrotinn þegar hann var keyrður út af vellinum. Vísir/Getty
Carolina Panthers vann 23-20 sigur á New Orleans Saints í fimmtudagsleik NFL-deildarinnar í nótt en þá hófst ellefta vika NFL-tímabilsins.

Luke Kuechly er leikmaður Carolina Panthers og einn af bestu varnarmönnum ameríska fótboltans. Það var erfitt fyrir hann að sætta sig við það í nótt að þurfa yfirgefa völlinn vegna meiðsla.

Luke Kuechly fékk höfuðhögg þegar hann reyndi að stöðva einn hlaupara New Orleans Saints liðsins og dómarar leiksins sendu hann í frekari rannsókn vegna mögulegs heilahristings.

Luke Kuechly fór af velli á hnjaskvagninum og tárin runnu hjá þessum mikla keppnismanni sem vildu augljóslega vera áfram inná vellinum til þess að hjálpa sínu liði. Stuðningsmenn Carolina Panthers hvöttu hann hinsvegar áfram með því að kalla „Luuuuke!“

Bæði samherjar og mótherjar töluðu vel um Luke Kuechly eftir leikinn og bæði hrósuðu honum og vonuðu að hann yrði ekki lengi frá. Það fer ekkert á milli mála að hann hefur unnið sér inn mikla virðingu í deildinni með frábærri frammistöðu.

Luke Kuechly missti af þremur leikjum í fyrra eftir að hann fékk heilahristing í leik. Næsti leikur liðsins er eftir tíu daga en það er ólíklegt að hann verði kominn með grænt ljós fyrir þann leik.

Carolina Panthers tókst að landa naumum sigri án síns besta varnarmanns og hefur nú unnið 4 af 10 leikjum sínum. Sigurinn er gríðarlega mikilvægur því liðið á enn möguleika á því að komast í úrslitakeppnina. Tap hefði nánast farið eytt allri von um að fá að keppa um titilinn í ár.

Það er hægt að sjá svipmyndir frá leiknum með því að smella hér.

Vísir/Getty
Vísir/Getty
NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×