Skoðun

Varnaðarorð varðandi sólmyrkvann

Guðrún J. Guðmundsdóttir skrifar
Það hefur varla farið fram hjá neinum að tækifæri gefst til að horfa á sólmyrkva í vikulokin ef veður leyfir. Að mínu viti hefur ekki verið lögð nærri nógu mikil áhersla á hættuna sem er því samfara að horfa á sólmyrkva án sérstakra sólmyrkvagleraugna. Að vísu hafa öll grunnskólabörn fengið afhent slík gleraugu og öðrum gefst kostur á að kaupa þau á völdum stöðum. Viss hætta hlýtur samt að vera á því að einhverjir sem ekki hafa náð að útvega sér gleraugun í tæka tíð freistist til að kíkja aðeins á þetta margumrædda fyrirbæri og hvað með leikskólabörnin sem ef til vill eru úti að leik á meðan á sólmyrkvanum stendur?

Flestir kannast við að hægt er að valda bruna með því að beina sólargeislum í gegnum stækkunargler. Hið sama getur gerst í auganu þegar augasteinninn brýtur sólargeislana og beinir þeim í brennipunkt á sjónhimnu augans. Þar sem augað horfir beint í sólina getur því myndast brunagat á versta stað, það er að segja í miðgróf sjónhimnunnar og veldur það blindum bletti í miðju sjónsviðsins með tilheyrandi sjónskerðingu. Til eru vægari útgáfur af augnbotnaskemmdum sem eru að vissu marki afturkræfar en oft verður þessi blindi blettur varanlegur og getur verið misstór, allt frá því að einn og einn stafur detti út úr orðum upp í algjört tap á lestrarsjón og skarpri sjón augans.

Undirrituð hefur starfað sem augnlæknir á Vesturlandi í tæpa þrjá áratugi og á þeim tíma hafa sést nokkrir sólmyrkvar á Íslandi, misstórir. Eftir hvern sólmyrkva sem sést hefur á þessu svæði hef ég séð minnst einn einstakling með varanlega sjónskerðingu eftir að hafa horft á sólmyrkvann án hlífðarbúnaðar og hlýtur að mega gera ráð fyrir að þó nokkrir einstaklingar hafi hlotið augnskaða á landinu öllu.

Ég vil því vara alla við að horfa á sólmyrkvann án tilskilins hlífðarbúnaðar. Það skal tekið fram að venjuleg sólgleraugu veita enga vörn í þessu tilfelli og því síður þrívíddargleraugu. Leikskólakennurum vil ég ráðleggja að halda börnunum inni á meðan á sólmyrkvanum stendur og sérstaklega vil ég beina því til þeirra sem verða með stóra hópa barna að horfa á myrkvann að brýna fyrir þeim að horfa allan tímann í gegnum gleraugun. Það þarf ekki að horfa á sólina í langan tíma til að valda óbætanlegum skaða.




Skoðun

Sjá meira


×