Enski boltinn

Vardy áfram hjá Leicester | Fer ekki til Arsenal

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Vardy með Englandsmeistarabikarinn.
Vardy með Englandsmeistarabikarinn. vísir/epa
Jamie Vardy hefur gert nýjan fjögurra ára samning við Englandsmeistara Leicester City.

Það verður því ekkert af félagaskiptum Vardys til Arsenal eins og flest benti til fyrir nokkrum dögum.

Vardy er þessa dagana með enska landsliðinu á EM 2016 í Frakklandi en það mætir einmitt því íslenska í 16-liða úrslitum keppninnar á mánudaginn.

Vardy, sem er 29 ára gamall, skoraði 24 mörk fyrir Leicester á síðasta tímabili þegar Refirnir komu öllum á óvart og urðu Englandsmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins.

Vardy, sem kom til Leicester frá Fleetwood Town 2012, hefur alls skorað 50 mörk í 144 leikjum fyrir félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×