Fótbolti

Varði þrjú víti í sama leiknum | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Það gerist ekki oft sem það gerist að markvörður ver þrjár vítaspyrnur í einum og sama leiknum en það gerðist í belgísku úrvalsdeildinni í gær.

Jean-Francois Gillet, markvörður Machelen, varði þá vítaspyrnur frá leikmönnum Anderlecht þegar liðin gerðu 1-1 jafntefli.

Gillet byrjaði á því að verja frá Dennis Praet á 7. mínútu. Sjö mínútum síðar fékk Anderlecht aðra vítaspyrnu en Gillet varði spyrnu Stefano Okaka.

Mínútu fyrir leikslok fékk Anderlecht svo þriðju vítaspyrnuna. Að þessu sinni fór Yoeri Tieleman á punktinn en honum tókst ekki, frekar en félögum sínum, að sigrast á Gillet sem gleymir þessum leik væntanlega ekki í bráð.

Vítaspyrnurnar og markvörslur Gillet má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×