Erlent

Vara við hatursorðræðu

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Flóttafólk á landamærum Serbíu og Makedóníu snemma á síðasta ári.
Flóttafólk á landamærum Serbíu og Makedóníu snemma á síðasta ári. vísir/epa
Mannréttindasamtökin Amnesty International vara við því sem þau kalla eitraðan áróður og hatursorðræðu í stjórnmálum víða um heim.

Stjórnmálamenn á borð við Donald Trump í Bandaríkjunum, Viktor Orban í Ungverjalandi, Narendra Modi á Indlandi, Recep Tayyip Erdogan í Tyrklandi og Rodrigo Duterte á Filippseyjum máli skrattann á vegginn til að ofsækja heilu hópana af fólki.

Þetta sé gert í nafni andófs gegn stofnanabákni en þjóni samt einkum þeim tilgangi að veiða atkvæði heimafyrir. Afleiðingarnar geti orðið skelfilegar.

„Óttastjórnmál eru orðin hættulegt afl í alþjóðastjórnmálum. Hvort sem í hlut eiga Trump, Orban, Erdogan eða Duterte ryðja æ fleiri stjórnmálamenn sér til rúms í nafni baráttu gegn kerfinu með eitraða stefnuskrá að vopni þar sem stórir hópar fólks eru gerðir að blórabögglum og mennska þeirra vanvirt,“ segir í skýrslunni.

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur magnað upp óttastjórnmál þar sem „okkur“ er stillt upp gegn „hinum“.Nordicphotos/AFP
„Ýmsir stjórnmálamenn samtímans halda þeirri hættulegu hugmynd blygðunarlaust fram að sumt fólk sé minni mannverur en annað. Ef sú hugmynd nær brautargengi er hætta á að leyst verði úr læðingi ýmis myrkustu öfl manneðlisins.“

Í nýrri ársskýrslu samtakanna er ítarlegt yfirlit yfir mannréttindaástandið í heiminum. Gerð er grein fyrir stöðunni í 159 löndum og er það ófögur lesning.

Milljónir manna bjuggu við skelfilega eymd og stanslausan ótta. Bæði stjórnvöld og vopnaðir hópar hafi brotið gegn fólki með margvíslegum hætti.

Fyrirlitningin á mannréttinda- og mannúðarhugsjónum hafi verið blygðunarlaus, eins og dæmin sanna: Vísvitandi sprengjuárásir á sjúkrahús hafi orðið daglegur viðburður í Sýrlandi og Jemen; flóttafólk var ítrekað hrakið til baka inn á átakasvæði; nánast algert aðgerðarleysi umheimsins í Aleppo hafi sterklega minnt á voðaverkin í Rúanda og Srebrenica árin 1994 og 1995; auk þess sem stjórnvöld í nánast öllum heimshornum hafi gripið til harkalegra aðgerða til að þagga niður í andófi og gagnrýni: Þar eru nefnd til sögunnar lönd á borð við Barein, Egyptaland, Eþíópíu, Filippseyjar og Tyrkland.

Víða snerust stjórnvöld gegn flóttafólki af mikilli hörku. Alls brutu stjórnvöld í 36 löndum gegn alþjóðalögum með því að senda flóttafólk aftur til landa þar sem hætta er á að brotið sé gegn þeim.

Þá hefur Donald Trump Bandaríkjaforseti sýnt að honum var alvara með hótanir sínar í aðdraganda kosninga þegar hann skrifaði undir forsetatilskipun um að meina flóttafólki frá ýmsum stríðshrjáðum ríkjum að leita hælis í Bandaríkjunum. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×