Körfubolti

Var troðsla tímabilsins á Egilstöðum í kvöld? | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tobin Carberry átti frábæran leik í kvöld þegar Höttur tryggði sér fyrsta sigur sinn í Domino´s deild karla í körfubolta á tímabilinu.

Tobin Carberry skoraði bara 40 stig í leiknum því hann átti tilþrif leiksins þegar tróð viðstöðulaust í hraðaupphlaupi eftir sendingu frá

Eysteini Bjarna Ævarssyni.

Carberry kom Hetti í 53-45 með þessari frábæru troðslu en hún kom í þriðja leikhlutanum þar sem heimamenn í Hetti fóru á kostum.

Tobin Carberry hitti úr 12 af 22 skotum sínum og var auk stiganna 40 með 6 fráköst, 6 stoðsendingar og 6 stolna bolta. Ekki slæm byrjun á nýja árinu hjá kappanum.

Hattar-liðið var búið að tapa ellefu fyrstu leikjum sínum í Domino´s deildinni en sýndi á móti Njarðvík í kvöld að liðið er ekki búið að gefast upp þrátt fyrir mótlætið.

Það er hægt að sjá troðslu Tobin Carberry í myndbandinu í spilaranum hér fyrir ofan en það verður betur fjallað um sigur Hattar í Körfuboltakvöldinu sem hefst klukkan 22.00 á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×