Menning

Var núna bara með vasaljós

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Allar myndirnar í seríunni voru teknar í eldgömlum heimavistarskóla í Lettlandi á stafræna Hasselblad-myndavél.mynd/Bjargey
Allar myndirnar í seríunni voru teknar í eldgömlum heimavistarskóla í Lettlandi á stafræna Hasselblad-myndavél.mynd/Bjargey Mynd/Bjargey
Bjargey Ólafsdóttir er að pakka niður fyrir flug til Ísafjarðar þegar ég heyri í henni. Þar ætlar hún að byrja á að hengja upp ljósmyndir í sýningarrýminu Slunkaríki í Edinborgarhúsinu, stórar, óræðar litljósmyndir af stúlkunni Jóhönnu.

 „Ég er að reyna að vekja sömu stemningu og í málverkum, með myndavélinni. Þetta er svolítið eins og að mála með ljósi. Að fanga hið óræða er það sem ég er að reyna að glíma við,“ útskýrir Bjargey.

Spurð hvort hún noti tölvuna til að fá fram það sem hún ætlar sér, harðneitar hún því. „Það er ekkert gert í tölvu. Ég tók þessar myndir í eldgömlum heimavistarskóla í Lettlandi á stóra digital Hasselblad-myndavél sem vinur minn lánaði mér.

Ég hef áður gert seríu sem heitir Tíra, þar sem ég spáði mikið í liti og ljós. Þá var ég að vinna með sólarljósið. Í þetta sinn var ég bara með vasaljós.“

Þegar ég gúggla Bjargeyju sé ég að hún hefur einmitt verið tilnefnd til ljósmyndaverðlaunanna Deutsche Börse og Godowski Colour fyrir seríuna Tíru.

„Mér finnst Ísafjörður heillandi bær,“ segir Bjargey, sem er með sýningu í Slunkaríki um helgina.Fréttablaðið/Daníel
Hún er ekki einhöm í listinni hún Bjargey því hún bindur sig ekki við neina eina aðferð til að koma hugsunum sínum á framfæri heldur fæst við kvikmyndagerð, skriftir, hljóðverk, gjörninga, teikningu, málun og ljósmyndir.

„Ég nota þann miðil sem hentar hugmyndinni hverju sinni,? segir hún.

En af hverju að sýna á Ísafirði. Er hún að vestan?

„Nei, en ég hef komið þangað nokkrum sinnum og finnst Ísafjörður heillandi bær. Það verður fínt að komast á skíði og svo auðvitað á Aldrei fór ég suður. Mundu að segja rokkurunum að mæta.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×