Var grimmari en orð fá lýst 9. september 2010 04:00 Natascha Kampusch segir nú sögu sína í viðtölum og ævisögu, sem brátt verður kvikmynduð. nordicphotos/AFP
Ég tel núna að Wolfgang Priklopil hafi, með því að fremja hræðilegan glæp, viljað búa sér til ekkert annað en lítinn fullkominn heim fyrir sjálfan sig með manneskju sem gæti verið þarna bara fyrir hann,“ skrifar Natascha Kampusch í ævisögu sinni, sem þessa dagana er að koma út í Austurríki. Ævisagan nefnist „3.096 dagar“ og þar lýsir hún reynslu sinni af Priklopil, sem rændi henni úti á götu í Vínarborg þegar hún var tíu ára og hélt henni fanginni í litlum klefa á heimili sínu í átta og hálft ár. Árið 2006 tókst henni að flýja og sama dag svipti hann sig lífi. „Á margan hátt var mannræninginn skepna og grimmari en orð fá lýst,“ skrifar hún. „Stundum barði hann mig svo lengi að mér fannst barsmíðarnar standa yfir klukkustundum saman.“ Stundum hafi hann ekki bara notað hendurnar, heldur garðklippur, kúbein og sementspoka. Hann lét hana svelta lengi, sagði hana vera of feita, en síðar hafi hún áttað sig á því að hann hafi með þessu dregið úr henni mátt svo hún ætti erfiðara með að flýja eða sýna mótspyrnu. Hún segir hann hafa dáð Adolf Hitler og lagt að henni að lesa bók Hitlers, Mein Kampf. Hann hafi lagt alla áherslu á að hún yrði honum undirgefin. „Þú átt enga fjölskyldu lengur. Ég er faðir þinn, móðir þín, amma þín og systur þínar. Ég er þér allt,“ segir hún hann hafa sagt. „Ég hef skapað þig,“ sagði hann líka. Hún segist þó alla tíð hafa neitað að krjúpa fyrir framan hann, þótt hann hafi aftur og aftur heimtað það af henni. Hann hafi neytt hana til þess að ganga um hálfnakta bæði í húsinu og úti í garði. Það hafi bæði verið gert til að niðurlægja hana og til þess að koma í veg fyrir flótta. „Hann vissi sem var að ég myndi ekki þora að flýja hálfnakin.“ Hún segir hvergi frá nauðgunum, en tekur þó fram að hún vilji halda því versta eftir fyrir sjálfa sig. Fólk viti nú þegar of mikið. Eftir fjórtán ára aldur lét hann hana stundum sofa við hliðina á sér í rúminu uppi í íbúðinni, hlekkjaða við hann með handjárnum. Ekki hafi hann þó reynt að nauðga henni. „Maðurinn sem barði mig, lokaði mig niðri í kjallara og svelti mig, vildi bara hafa einhvern til að hjúfra sig upp að,“ segir hún. Hún hefur í viðtölum vegna útkomu bókarinnar sagt einna erfiðast að útskýra fyrir fólki að stundum hafi hún þrátt fyrir allt átt góðar stundir með kvalara sínum. Hann var eini félagsskapurinn sem hún átti kost á allan þennan tíma. Hún hafi þó haft betur á endanum og aldrei gerst honum undirgefin eins og hann vildi. „Honum mistókst,“ segir hún í einu viðtalinu. „Það er ekki hægt að stjórna neinum algerlega, því ef maður reynir það þá verður sá sem reynt er að stjórna sá sem stjórnar – því athyglin er öll á honum.“ gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Borgin afþakkar risaeðlubein Innlent Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Fleiri fréttir Kaninn pakkar saman í Evrópu Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Sjá meira