Körfubolti

Valur stöðvaði sigurgöngu Skallagríms | Öll úrslit kvöldsins

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Carmen Tyson-Thomas fór á kostum í Schenker-höllinni.
Carmen Tyson-Thomas fór á kostum í Schenker-höllinni. vísir/stefán
Heil umferð fór fram í Domino's deild kvenna í kvöld.

Snæfell vann toppslaginn gegn nýkrýndum bikarmeisturum Keflavíkur, 57-62.

Valskonur gerðu góða ferð í Borgarnes og lögðu topplið Skallagríms að velli, 63-71. Fyrir leikinn voru Borgnesingar búnir að vinna níu leiki í röð.

Mia Loyd skilaði rosalegum tölum í liði Vals; skoraði 28 stig og tók 24 fráköst.

Hjá Skallagrími var Sigrún Sjöfn Ámundadóttir atkvæðamest með 18 stig og 11 fráköst.

Carmen Tyson-Thomas fór mikinn þegar Njarðvík vann mikilvægan sigur á Haukum, 61-66. Njarðvík var aðeins með 27% skotnýtingu í leiknum en tókst þrátt fyrir það að vinna. Liðið rústaði frákastabaráttunni 63-39.

Stefán Karlsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var í Schenker-höllinni í kvöld og tók meðfylgjandi myndir.

Þetta var fyrsti sigur Njarðvíkur í fimm leikjum. Liðið er áfram í 6. sætinu en er nú sex stigum á undan Haukum sem eru í 7. sætinu.

Tyson-Thomas skoraði 38 stig, tók 22 fráköst og gaf sjö stoðsendingar.

Nashika Williams skoraði 26 stig og tók 13 fráköst í liði Hauka sem hefur tapað fimm leikjum í röð.

Grindvíkingar fóru illa að ráði sínu gegn Stjörnukonum í Röstinni.

Grindavík var fimm stigum yfir, 66-61, þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir en endaði á því að tapa leiknum 71-74. Ótrúlegt hrun hjá Grindvíkingum sem hafa tapað 10 leikjum í röð.

Danielle Victoria Rodríguez var að venju stigahæst í liði Stjörnunnar með 36 stig. Ragna Margrét Brynjarsdóttir skoraði 13 stig og tók 10 fráköst.

Ingunn Embla Kristínardóttir og María Ben Erlingsdóttir skoruðu 15 stig hvor fyrir Grindavík.

Keflavík-Snæfell 57-62 (18-10, 11-18, 16-19, 12-15)

Keflavík: Ariana Moorer 22/6 fráköst/5 stoðsendingar, Birna Valgerður Benónýsdóttir 14, Thelma Dís Ágústsdóttir 13/9 fráköst, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 4/4 fráköst/3 varin skot, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 4.

Snæfell: Aaryn Ellenberg-Wiley 29/9 fráköst, Berglind Gunnarsdóttir 10/9 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 7/4 fráköst/5 stoðsendingar, Gunnhildur Gunnarsdóttir 5, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 5, Andrea Björt Ólafsdóttir 4/4 fráköst, María Björnsdóttir 2/5 fráköst.

Skallagrímur-Valur 63-71 (15-17, 15-14, 15-22, 18-18)

Skallagrímur: Sigrún Sjöfn  Ámundadóttir 18/11 fráköst, Tavelyn Tillman 16/8 fráköst/5 stoðsendingar, Kristrún Sigurjónsdóttir 12, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 10/9 fráköst, Fanney Lind Thomas 5/5 fráköst, Ragnheiður Benónísdóttir 2/5 fráköst.

Valur: Mia Loyd 28/24 fráköst/5 stoðsendingar, Dagbjört Dögg Karlsdóttir 10/9 fráköst, Guðbjörg Sverrisdóttir 9, Bergþóra Holton Tómasdóttir 8/6 fráköst, Dagbjört Samúelsdóttir 6, Hallveig Jónsdóttir 6, Elín Sóley Hrafnkelsdóttir 4.

Haukar-Njarðvík 61-66 (17-22, 18-20, 17-11, 9-13)

Haukar: Nashika Wiliams 26/13 fráköst, Dýrfinna Arnardóttir 13, Anna Lóa Óskarsdóttir 8, Rósa Björk Pétursdóttir 6/5 fráköst, Ragnheiður Björk Einarsdóttir 4, Þóra Kristín Jónsdóttir 2/8 fráköst/5 stoðsendingar, Sólrún Inga Gísladóttir 2.

Njarðvík: Carmen Tyson-Thomas 38/22 fráköst/7 stoðsendingar, Ína María Einarsdóttir 9, Heiða Björg Valdimarsdóttir 7/4 fráköst, Linda Þórdís Barðdal Róbertsdóttir 7/13 fráköst, María Jónsdóttir 3, Björk Gunnarsdótir 2/4 fráköst/5 stolnir.

Grindavík-Stjarnan 71-74 (11-15, 29-20, 21-12, 10-27)

Grindavík: María Ben Erlingsdóttir 15, Ingunn Embla Kristínardóttir 15/6 fráköst, Petrúnella Skúladóttir 13/10 fráköst/5 stoðsendingar/5 stolnir, Ólöf Rún Óladóttir 11/5 fráköst, Íris Sverrisdóttir 8, Hrund Skúladóttir 6, Lovísa Falsdóttir 3.

Stjarnan: Danielle Victoria Rodriguez 36/9 fráköst/5 stolnir, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 13/10 fráköst, Hafrún Hálfdánardóttir 7/8 fráköst, Bríet Sif Hinriksdóttir 6/4 fráköst, Shanna Dacanay 5, Bryndís Hanna Hreinsdóttir 3, María Lind Sigurðardóttir 2/6 fráköst, Jónína Þórdís Karlssdóttir 2, Jenný Harðardóttir 0/4 fráköst.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×