Fótbolti

Valur spilar við Bröndby

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Valsmenn eru örugglega ánægðir með dráttinn.
Valsmenn eru örugglega ánægðir með dráttinn. vísir/eyþór
KR, Valur og Breiðablik voru öll í pottinum þegar dregið var í forkeppni Evrópudeildarinnar nú áðan.

Valsmenn fá skemmtilegasta leikinn en þeir mæta danska liðinu Bröndby sem varð í fjórða sæti í dönsku deildinni á síðustu leiktíð.

KR spilar við Glenavon frá Norður-Írlandi á meðan Blikar fara í lengsta ferðalagið og spilar við Jelgava frá Lettlandi.

Á eftir verður svo dregið í aðra umferð forkeppninnar og þá vita íslensku liðin hvað bíður þeirra komist þau áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×