Handbolti

Valur með sannfærandi sigur á Haukum | Myndir

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Díana Dögg Magnúsdóttir skorar fyrir Val í kvöld.
Díana Dögg Magnúsdóttir skorar fyrir Val í kvöld. vísir/eyþór
Valskonur tóku Hauka í kennslustund í tólftu umferð Olís-deildar kvenna í handbolta í kvöld þegar liðin mættust í Valshöllinni. Hlíðarendastúlkur unnu átta marka sigur, 25-17.

Munurinn var aðeins tvö mörk í hálfleik, 9-7, en Valskonur settu í gírinn í þeim síðari og stungu af en Haukarnir skoruðu aðeins tíu mörk í seinni hálfleik.

Kristín Guðmundsdóttir var markahæst hjá Val í kvöld með níu mörk, þar af fimm úr vítaköstum. Morgan Marie Þorkelsdóttir og Diana Satkauskaite skoruðu báðar fjögur mörk.

Ramune Pekarskyte var markahæst í Haukaliðinu með fimm mörk og Marie Ines Da Silva skoraði þrjú mörk líkt og Guðrún Erla Bjarnadóttir.

Valur er í þriðja sæti deildarinnar með 16 stig eftir sigurinn en Haukar eru sæti neðar með tólf stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×