Handbolti

Valsmenn á leið til strandbæjar í Svartfjallalandi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals.
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals. Vísir/Stefán
Valur mætir RK Partizan frá Svartfjallalandi í sextán liða úrslitum Áskorendakeppni Evrópu í handbolta.

Valsmenn slógu út norska liðið Haslum í 3. umferðinni eftir sjö marka heimasigur og jafntefli á útivelli.

Valsmenn spila fyrri leikinn á móti RK Partizan á heimavelli sínum í Valshöllinni á Hlíðarenda en sá seinni fer fram á heimavelli Partizan í Tivat sem er hafnarbær í suðvestur Svartfjallalandi.

RK Partizan sló út A.S.S. Spes frá Kýpur í 3. umferðinni eftir að hafa gert jafntefli í seinni leiknum alveg eins og Hlíðarendaliðið. Partizan–liðið keypti hinsvegar heimaleikinn af Kýpverjunum.

Valsmenn þurfa að hafa sérstakar gætur á hinum 23 ára gamla Djordjo Perunicic sem skoraði sextán mörk í leikjunum tveimur á móti A.S.S. Spes þar af ellefu þeirra í fyrri leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×