Golf

Valdís og Ólafía byrja vel

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Valdís Þóra Jónsdóttir lék fyrsta keppnisdaginn á tveimur höggum undir pari.
Valdís Þóra Jónsdóttir lék fyrsta keppnisdaginn á tveimur höggum undir pari. mynd/gsí
Valdís Þóra Jónsdóttir, Leyni, og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, byrjuðu vel á fyrsta keppnisdeginum á LETAS móti sem hófst í Finnlandi í dag.

Valdís, sem er á sínu öðru tímabili á LETAS mótaröðinni, er í 2.-4. sæti á tveimur höggum undir pari (samtals 69 höggum) en Ólafía, sem er á sínu fyrsta tímabili, er á einu undir pari (samtals 70 höggum) og er hún í 5.–10. sæti.

Valdís náði góðum lokakafla eftir að hafa fengið þrjá fugla og þrjá skolla á fyrri níu holunum. Hún lagaði stöðu sína með erni á 13. braut og fuglum á 15. og 18. Alls fékk hún fimm fugla og einn örn á hringnum.

Leiknar verða 54 holur og lýkur keppninni á sunnudaginn.

Mótið er hluti af LETAS mótaröðinni sem er sú næst sterkasta í Evrópu. Þetta er 13. mótið hjá Ólafíu á þessu tímabili en hún er í 16. sæti á styrkleikalista mótaraðarinnar af alls 154 kylfingum sem hafa tekið þátt. Valdís Þóra er að leika á sínu 11. móti á þessu tímabili en hún er í 25. sæti á styrkleikalistanum.

Það er að miklu að keppa fyrir íslensku atvinnukylfingana. Fimm  efstu á stigalistanum fá keppnisrétt á sjálfri LET Evrópumótaröð kvenna á næsta tímabili. Þeir sem eru í sætum 6-20 komast beint inn á lokaúrtökumótið í haust og sleppa við fyrra úrtökumótið en þessi mót fara fram í nóvember og desember í Marokkó.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×