Erlent

Væntanlegir ráðherrar spurðir spjörunum úr

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Donald Trump tekur í höndina á Jeff Sessions, sem á að verða dómsmálaráðherra í næstu ríkisstjórn Bandaríkjanna.
Donald Trump tekur í höndina á Jeff Sessions, sem á að verða dómsmálaráðherra í næstu ríkisstjórn Bandaríkjanna. vísir/afp
Öldungadeild Bandaríkjaþings ætlar að hefjast handa í dag við að yfirheyra væntanlega ráðherra í ríkisstjórn Donalds Trump.

Repúblikanar hafa lagt mikla áherslu á að hraða yfirheyrslunum, enda þótt siðaskrifstofa þingsins og margir Demókratar leggi áherslu á að fyrst verði þeir að leggja fram hagsmunaskrá sína, eins og reglur kveða á um.

Til stendur að byrja á John F. Kelly sem á að verða heimavarnaráðherra og Jeff Sessions sem Trump ætlar að gera að varnarmálaráðherra.

Sessions verður vafalítið spurður út í ummæli sín frá fyrri tíð, sem þóttu bera svo sterkan kem af kynþáttafordómum að árið 1986 þótti hann óhæfur til að gegna embætti dómara.

Einna alræmdust urðu þar ummæli frá árinu 1983 þegar hann vann að rannsókn á morði Ku Klux Klan manna á þeldökkum unglingspilti. Sessions sagðist þá hafa borið virðingu fyrir liðsmönnum Ku Klux Klan, en sú virðing hafi dvínað mjög þegar hann frétti að morðingjarnir hefðu verið að reykja hass.

Á morgun verður svo haldið áfram að yfirheyra ráðherraefnin, meðal annars Rex W. Tillerson sem Trump vill að verði utanríkisráðherra ríkisstjórnar sinnar.

Fastlega er búist við að Tillerson, sem hefur stjórnað olíufyrirtækinu Exxon Mobil, verði spurður ítarlega út í býsna náin tengsl sín við rússneska ráðamenn, þar á meðal Vlad­imír Pútín forseta.

Pútín hefur ekki farið dult með ánægju sína með að Trump verði forseti Bandaríkjanna.

Dmitrí Peskov, talsmaður Pútíns, sagðist hins vegar í gær vera búinn að fá meira en nóg af ásökunum um að Pútín hafi fengið leyniþjónustumenn sína til þess að brjótast inn í tölvur bandaríska Demókrataflokksins til að hafa áhrif á forsetakosningarnar þar í nóvember.

Peskov sagði ásakanirnar vera ófagmannlegar og minna sig helst á nornaveiðar.

Trump hefur sjálfur sagt umræðuna um tengsl sín við Rússa vera nornaveiðar, en á sunnudaginn fullyrti Reince Priebus, væntanlegur starfsmannastjóri Hvíta hússins, að Trump hafi alls ekki neitað því að Rússar standi á bak við innbrotin í tölvukerfi Demókrata. Rússar hafi hins vegar stundað slík afskipti árum saman. Það hafi auk þess ekki haft nein bein áhrif á kosninga­úrslitin. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×