Innlent

Útlendingastofnun frestaði flutningi af sanngirnisástæðum

Atli Ísleifsson skrifar
Idafe ásamt kærustu sinni, Aldísi Báru Pálsdóttur.
Idafe ásamt kærustu sinni, Aldísi Báru Pálsdóttur. MYND/HELGI J. HAUKSSON
Flutningi á þremur hælisleitendum sem til stóð að flytja til Ítalíu nú í morgun var frestað af sanngirnisástæðum.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Útlendingastofnun þar sem segir að stofnunin hafi farið þess á leit við alþjóðadeild ríkislögreglustjóra í gærkvöld að ekki yrði af flutningi mannanna til Ítalíu. Hafi ekki orðið af því að þeir færu til Ítalíu.

Idafe Onafe Oghene, Martin Omulu og Christian Boadi fengu í gærkvöld þær fréttir að beiðni um flutning hans af landi brott hefði verið afturkölluð. Þeim var sagt á þriðjudag að þeir þyrftu að fara til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar en mennirnir þrír eru hælisleitendur, tveir þeirra nígerískir en sá þriðji ganverskur.

Í tilkynningu Útlendingastofnunar segir að bráðabirgðadvalar- og atvinnuleyfi hælisleitenda skv. 12. gr. g útlendingalaga sé bundið við það að meðferð hælismáls standi yfir og fellur það niður þegar úrskurður í máli er framkvæmdur með flutningi.

„Þegar óskað var framkvæmdar flutninganna lágu fyrir úrskurðir innanríkisráðuneytisins þess efnis að mennina þrjá skyldi flytja til Ítalíu. Með dómum Hæstaréttar í október á liðnu ári varð endanlega ljóst að úrskurðirnir héldu gildi sínu. Þá þegar voru skilyrði fyrir hendi til að óska endurupptöku fyrir kærunefnd útlendingamála.

Var sammerkt með öllum málunum að endurupptökubeiðnir voru ekki sendar kærunefnd útlendingamála, því stjórnvaldi sem heimilt er að lögum að taka slíka beiðni til meðferðar, fyrr en farið hafði verið fram á framkvæmd úrskurðanna. Legið hefur fyrir síðan dómar Hæstaréttar féllu að væntanlegt væri að úrskurðirnir kæmu til framkvæmdar með flutningi til Ítalíu.

Að mati Útlendingastofnunar var ótækt að láta þær tafir, sem urðu á að koma málunum í réttan farveg eins og áður er lýst, bitna á hælisleitendunum þremur sem um ræðir. Varð þeim sjálfum á engan hátt kennt um að ekki hafði verið óskað endurupptöku með fullnægjandi hætti en auk þess hefur, sem kunnugt er, mikið vatn runnið til sjávar í málaflokknum síðan úrskurðirnir voru kveðnir upp, almennt og hvað varðar aðstæður hælisleitenda á Ítalíu.

Með tilliti til þessa var það mat Útlendingastofnunar að sanngirnissjónarmið, mikilvægi þeirra hagsmuna sem í húfi eru í hælismálum og almenn sjónarmið um meðalhóf og vandaða stjórnsýslu leiddu til þess að rétt væri að fresta flutningum þar til kærunefnd útlendingamála hefði fengið færi á að taka afstöðu til endurupptöku málanna.

Því varð það niðurstaðan, þegar staðfesting hafði borist Útlendingastofnun um að endurupptökubeiðni hefði verið lögð fram eða að slík beiðni yrði borin fram án tafar í málunum, að stofnunin afturkallaði beiðni um framkvæmd flutninga.

Ástæða þykir til að taka fram að Útlendingastofnun leysti úr málunum þremur á tveimur til fjórum mánuðum. Hæstiréttur féllst á upphaflega niðurstöðu Útlendingastofnunar í öllum málunum,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Glaður yfir að fara ekki

Hælisleitandinn Idafe Onafe Oghene fékk í gærkvöld þær fréttir að beiðni um flutning hans af landi brott hefði verið afturkölluð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×