Tónlist

Útgáfutónleikar Sin Fang í kvöld

Sin Fang heldur útgáfutónleika í Iðnó í kvöld og sér Vök um upphitun.

Hljómsveitin er nýkomin úr þriggja vikna tónleikaferð um Þýskaland. Einnig hefur hún sent frá sér myndband við lagið What"s Wrong With Your Eyes sem er að finna á plötunni Flowers sem kom út nýverið á vegum Morr Music. Hún hefur fengið góðar undirtektir tónlistarunnenda og gagnrýnenda.

Hægt er að horfa á myndbandið í spilaranum hér fyrir ofan. Því er leikstýrt af Mána M. Sigfússyni, bróður Sindra, forsprakka Sin Fang.

Flowers er þriðja plata Sin Fang í fullri lengd en að auki hafa komið út nokkrar stuttskífur, m.a. EP-platan Half Dreams sem kom út í fyrra.

Hægt er að nálgast miða á tónleikana í kvöld hér á midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×