Útborgunardagur á Hrauninu á morgun 13. maí 2010 19:25
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupþings, fékk um átján og hálfa milljón í laun á viku árið 2006. Dagpeningar hans á Litla-Hrauni nema 3.150 krónum á viku en útborgunardagur er á Hrauninu morgun. Í þriðja bindi Rannsóknarskýrslu Alþingis kemur fram að heildarlaun Hreiðars Más Sigurðssonar voru rúmar 80 milljónir á mánuði árið 2006. Hann þénaði því rúmlega átján komma fjórar milljónir á viku og hafði því rúmlega tvær komma sex milljónir hvern einasta dag ársins. Nú er af sem áður var. Nú bjóðast Hreiðari aðeins 630 krónur fyrir hvern virkan dag vikunnar á meðan hann situr í gæsluvarðhaldi. Heildargreiðsla er því 3.150 krónur á viku en greitt er út er á föstudögum. Erlendur Baldursson, deildarstjóri Fangelsismálastofnunnar, segir sömu reglur gilda fyrir alla gæsluvarðhaldsfanga og þeir geti þegið dagpeninga óháð fyrri tekjum. Í reglum um gæsluvarðhaldsvist er skýrt kveðið á um hvernig móttaka fanga skuli fara fram. Við komuna í fangelsið skal fangi afhenda persónulega muni og líkamsleit er framkvæmd á honum. Áður en fanginn er svo færður til klefa síns er heimilt að ákveða hvort hann fari í bað eða sturtu. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Hreiðar Már farið fram á að fá grænmetisfæði á meðan hann er í gæsluvarðhaldi. Erlendur segir að við slíkum óskum sé brugðist og fangelsisyfirvöld útvegi fæðið. Alla jafna eru gæsluvarðhaldsfangar fluttir í Skodabifreið lögreglu í gæsluvarðhald á Litla Hrauni og nær undantekningarlaust í handjárnum og jafnvel fótjárnum ef þeir eru taldir hættulegir. Athygli vekur að Kaupþingsmönnum var ekið í stórum jeppa á Hraunið með skyggðum rúðum og þeir voru ekki handjárnaðir. Aðspurður segir Erlendur að lögregla svari fyrir hvernig á því stóð.
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Eldur í Árbænum Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Hafnar kreddum um verðbólguna Innlent Fleiri fréttir Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Sjá meira