Innlent

Utanríkismálanefnd mun funda um stuðning NATO við aðgerðir Tyrkja

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Ástandið í Tyrklandi er eldfimt um þessar mundir, myndin er af mótmælum í Istanbúl í vikunni.
Ástandið í Tyrklandi er eldfimt um þessar mundir, myndin er af mótmælum í Istanbúl í vikunni. Vísir/EPA
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar, hefur óskað eftir fundi í utanríkismálanefnd til þess að ræða stuðning Atlantshafsbandalagsins við aðgerðir Tyrkja við landamæri Írak og Sýrlands. Aðgerðirnar beinast ekki síður gegn Kúrdum heldur en ISIS. Kúrdar hafa sjálfir tekið þátt í baráttunni gegn ISIS.

„Ég ákvað að biðja um fund eftir að hafa lesið þessar fréttir í vikunni,“ segir Katrín í samtali við Vísi. Hún spyr á hvaða forsendum Atlantshafsbandalagið styður hernaðaraðgerðir Tyrkja því um er að ræða áratugalanga baráttu Tyrkja og Kúrda. „Það er verið að blanda henni inn í allt annað mál sem er ISIS. Kúrdar hafa líka verið framarlega í baráttunni gegn ISIS þannig að maður veltir því fyrir sér hvaða afleiðingar þetta muni hafa,“ segir Katrín.

„Ég vil annars vegar fá skýringu á hvaða forsendur væru á bakvið þennan fund Atlantshafsbandalagsins og hvort að íslensk stjórnvöld hefðu skoðað þetta mál sérstaklega og gert einhverjar athugasemdir við þetta.“

Katrín hefur lýst yfir miklum efasemdum við stuðning Íslands við aðgerðirnar gegn ISIS. „Ég sé ekki að þær séu í raun og veru að skila þessum árangri.“ Hún vill fara í annars konar aðgerðir heldur en loftárásir.

Birgir Ármannson, formaður utanríkismálanefndar, hyggst kalla til fundar sem fyrst, ef til vill strax í næstu viku að sögn Katrínar. „Það hafa allir skilning á því að það gæti reynst erfitt að kalla saman fund en hann hafði mikinn skilning á þessu og sagðist myndu koma á fundi í næstu viku, mig minnir að hann hafi sagt næstu viku já.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×