Handbolti

Utan vallar: Þyrnirósarsvefn handboltans

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Íslenska handboltahreyfingin er komin með gula spjaldið.
Íslenska handboltahreyfingin er komin með gula spjaldið. vísir/daníel
Stærstu vefmiðlar landsins hafa þjónað íslenskum handbolta ótrúlega vel síðustu ár. Svo vel reyndar að engin önnur deild í heiminum státar af álíka þjónustu. Vefumfjöllun um Olís-deild karla hefur verið sú besta í heiminum. Ég fullyrði það enda fylgist ég vel með umfjöllun stærstu deilda heims.

Breytingar voru gerðar á deildinni í sumar. Fjölgað var úr átta liðum í tíu og fara átta lið í úrslitakeppni í stað fjögurra áður.  Leikjum í deildinni hefur þar af leiðandi fjölgað um 50. Í kjölfarið hafa vefmiðlar dregið saman seglin í sinni umfjöllun. Skiljanlega. Fleiri leikir kalla á meiri kostnað og svo er mikilvægi leikja ekki heldur það sama lengur.

Þegar umfjöllun miðlanna hefur minnkað hvað kemur þá í ljós? Jú, upplýsingaþjónusta hreyfingarinnar er ein rjúkandi rúst! Það er nákvæmlega ekkert að frétta. Það er engin leið að fylgjast með gangi mála í leikjum hjá félögunum eða HSÍ. Það er aðeins Akureyri sem sýnir smá viðleitni í að sinna sínu liði almennilega.

Handboltahreyfingin hefur lítið sem ekkert þróast á nýjum tímum og menn þar á bæ verða að fara að líta í eigin barm og gera eitthvað í sínum málum.

Ekki einu sinni má nálgast uppfærðar tölur úr leikjum á Facebook eða Twitter. Það útheimtir ekki beint mikla vinnu. HSÍ hefur talað um að taka upp úrslitaþjónustukerfi í að verða þrjú ár núna. Lítið bólar á því. Það er allt á sömu bókina lært.

Félögum er uppálagt að senda skýrslur til fjölmiðla eftir leiki sem fjölmiðlamenn þurfa síðan að skrifa upp úr. Þær skýrslur berast oft bæði seint og illa. Á vef HSÍ er oft ekki hægt að nálgast leikskýrslur degi eftir leik og stundum nokkrum dögum eftir leiki. Þetta kallast á góðri íslensku grín. Hreyfingin hefur verið föst í sömu hjólförum í mörg ár og virðist ætla að spóla þar áfram.

Handboltinn mætti líta aðeins til nágranna sinna í körfuboltahreyfingunni. Það er orðið þó nokkuð síðan KKÍ tók upp flotta og glæsilega úrslitaþjónustu. Slíkt telst eðlilegt á þeim tímum sem við lifum á. Árið 2015 er jú handan við hornið.

Félögin láta þessa þjónustu KKÍ ekki duga heldur þjónusta áhugamenn um körfubolta á frábæran hátt með beinum vefsjónvarpsútsendingum til að mynda. Það gera fjölmörg félög vel. Algjörlega til fyrirmyndar.

Á meðan sitja forráðamenn handboltahreyfingarinnar, bæði HSÍ og félögin, við sinn keip. Þau kvarta í stað þess að gera eitthvað í sínum málum til tilbreytingar. Sum af stærri félögum landsins geta ekki einu sinni boðið fjölmiðlum upp á boðlegt internet og allt of mörg félög virðast engan áhuga hafa á því að hafa umgjörðina í lagi.

Hvenær ætlar hreyfingin að vakna af Þyrnirósarsvefninum?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×