„Wild Icelandic Cod“ er vinningstillaga Hnakkaþonsins 2017 sem fram fór nú um helgina.
Úrslit keppninnar voru tilkynnt í gær en sigurliðið skipa nemendur í fjármálaverkfræði og viðskiptafræði, þeir Bjarki Þór Friðleifsson, Fannar Örn Arnarsson, Jóhannes Hilmarsson, Ómar Sindri Jóhannsson og Sigurður Guðmundsson. Hópurinn mun heimsækja Seafood Expo North America, stærstu sjávarútvegssýningu N-Ameríku í Boston í mars, í boði Icelandair Group og sendiráðs Bandaríkjanna á Íslandi.
Hnakkaþonið fór fram dagana 19. janúar til 21. janúar en á Facebook-síðu keppninnar segir að Hnakkaþon sé „samkeppni fyrir upprennandi sérfræðinga í markaðsmálum, hugbúnaði, tækni og vörustjórnun til að sanna hæfni sína og hæfileika í að þróa og útfæra lausnir fyrir fyrirtæki í sjávarútvegi. Áskorun Hnakkaþonsins tengist sjávarútvegi, einum af meginatvinnuvegum þjóðarinnar.“ Keppnin er opin öllum nemum Háskólans í Reykjavík.
Þetta er í þriðja sinn sem Háskólinn Reykjavík (HR) og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) standa Hnakkaþoni. Að þessu sinni unnu nemendur HR með útgerðarfyrirtækinu Vísi í Grindavík, Marel og prentsmiðjunni Odda en áherslan var á pökkun á ferskfiski. Fimm lið skiluðu inn tillögum.
Í fréttatilkynningu segir að vinningstillagan sé hugmynd að nýjum og umhverfisvænum neytendapakkningum fyrir Vísi í Grindavík sem mun nota pakkningarnar fyrir íslenskan fisk á bandarískum markaði ef tillagan nær fram að ganga.
Á umbúðunum eru einnig einfaldar uppskriftir fyrir neytendur fisksins.
Ari Kristinn Jónsson rektor HR sagði við verðlaunaafhendinguna að öll liðin hefðu skilað inn frambærilegum tillögum.
„Viðfangsefni keppninnar í þetta sinn var að setja fram ítarlegar tillögur um hvernig þróa mætti vinnslu og pökkun á fiski hjá Vísi þannig að enn betur væri mætt þörfum neytenda fyrir vandaðar og hentugar pakkningar, á sama tíma og fullt tillit væri tekið til bæði kostnaðar, sjálfbærni og umhverfisáhrifa. Það er afskaplega krefjandi að setja fram nýjar og gagnlegar hugmyndir, þar sem tekið er tillit til allra mögulega áhrifa þeirra. Liðin leystu þetta öll mjög vel og því var það alls ekki auðvelt fyrir dómnefnd að velja sigurvegara. En dómnefndin leysti sitt hlutverk vel og fagmannlega, og skilaði á endanum samhljóða niðurstöðu.“
Úrslit ljós í Hnakkaþoninu 2017
nína hjördís þorkelsdóttir skrifar

Mest lesið


„Alltaf leiðindamál að lenda í svona“
Viðskipti erlent

Flügger rannsakað fyrir brot á viðskiptaþvingunum
Viðskipti erlent

Birta stendur frammi fyrir 1,5 milljarða tapi á Play
Viðskipti innlent


Lánardrottnar slá af milljarð af vöxtum á ári
Viðskipti innlent


Ósátt með samráðsleysi stjórnvalda
Viðskipti innlent


Samkaup segja upp tuttugu og tveimur
Viðskipti innlent