Sport

Urðu að aflýsa keppninni af því að hjólreiðafólkið fór að fjúka aftur á bak | Myndbönd

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það var ekkert grín fyrir keppendur í Cape Town City Cycle Tour að komast áfram með hjólin sín.
Það var ekkert grín fyrir keppendur í Cape Town City Cycle Tour að komast áfram með hjólin sín. Vísir/EPA
Það tókst ekki að krýna sigurvegara í heimsþekktri hjólreiðakeppni í Suður-Afríku um helgina og ástæðan var að keppendur voru hættir að komast eitthvað áfram vegna aðstæðnanna í Höfðaborg.

Mótshaldarar tóku þá ákvörðun að flauta keppnina af þegar vindurinn var orðinn svo mikill að hjólreiðafólkið var hætt að komast áfram. Þeir hefðu kannski betur tekið þessa ákvörðun fyrr því án efa settu þeir keppendur í mikla hættu.

Þetta var í fertugasta skiptið sem „Cape Town City Cycle Tour“ keppnin er haldin og mótshaldarar þrjóskuðust við að fresta keppninni þrátt fyrir slæma spá.

„Cape Town City Cycle Tour“ er fjölmennasta einstaklingshjólreiðakeppni í heimi og það voru því margir erlendir hjólreiðakappar mættir til leiks í Höfðaborg.

Alls ætluðu 35 þúsund hjólreiðakappar að taka þátt en aðeins 700 þeirra voru komnir af stað þegar ljóst var að keppnisaðstæðurnar voru orðnar stórhættulegar. Fyrstu menn voru ræstir hálf sjö um morguninn að staðartíma. Því var tekin sú ákvörðun að aflýsa keppninni og kannski sem betur fer.

Forráðamenn „Cape Town City Cycle Tour“  keppninnar hafa í framhaldinu gefið það út að þeir eru núna alveg hættir við keppnina í ár og allir sem voru mættir til Höfðaborg komu því í fýluferð. Hjólreiðafólkið fær hvorki aðra keppni né þátttökugjöldin sín endurgreidd.

Margir tóku upp vandræði hjólreiðamannanna og það leynir sér ekkert á þeim myndböndum, sem mörg hver má sjá hér fyrir neðan, að það var alvöru rok í Höfðaborginni þennan sunnudag.

Watse wind? #capetowncycletour

A post shared by ??? (@burgerstorm) on




Fleiri fréttir

Sjá meira


×