Körfubolti

Upplifun að mæta svona stórum og sterkum mönnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tryggvi Snær leikur sína fyrstu keppnisleiki með íslenska landsliðinu í undankeppni EM 2017.
Tryggvi Snær leikur sína fyrstu keppnisleiki með íslenska landsliðinu í undankeppni EM 2017. vísir/anton
Fátt kom á óvart í vali Craig Pedersen á tólf manna lokahópi sínum fyrir undankeppni EM 2017 í körfubolta, ef frá er talið val hans á miðherjanum Tryggva Snæ Hlinasyni sem fékk nú tækifærið í stað Ragnars Nathanaelssonar.

Tryggvi Snær er 216 cm miðherji sem sló í gegn með Þór Akureyri í 1. deildinni í vetur. Þessi öflugi Bárðdælingur þykir mikið efni og er hann nú undir smásjá atvinnumannaliða í Evrópu sem og háskólaliða í Bandaríkjunum.

En fyrst um sinn mun hann einbeita sér að landsliðinu sem hefur leik í undankeppni EM annað kvöld þegar strákarnir mæta Sviss í Laugardalshöllinni.

Dagur eins og vika

„Ég er alsæll með að fá tækifærið,“ sagði Tryggvi Snær við Fréttablaðið í gær. „Ég hafði svo sem trú á því að ég kæmist í liðið en það hefði samt ekki komið mér á óvart að Ragnar hefði verið valinn. Það hefði ég skilið fullkomlega.“

Hann hefur notið góðs af því að æfa með íslenska landsliðshópnum í sumar en auk þess var hann í eldlínunni með U-20 liði Íslands sem komst í úrslitaleik B-deildar EM í Grikklandi.

„Ég hef lært óendanlega mikið af þessum köllum. Þeir eru ófeimnir við að koma með ábendingar og líður mér stundum eins og að einn dagur með landsliðinu sé eins og ein vika með félagsliði.“

Tryggvi Snær sló í gegn með Þór í 1. deildinni á síðasta tímabili.vísir/anton
Gaman að kljást við stóra kalla

Tryggvi Snær er fyrst og fremst vanur því að spila með Þór Akureyri í 1. deildinni og hefur því kynnst því í fyrsta sinn í sumar hvernig það er að kljást við leikmenn sem eru svipaðir honum í vexti.

„Á æfingamótinu í Austurríki mætti ég til dæmis einum svakalega stórum og sterkum leikmanni. Það var í fyrsta sinn sem ég fékk það á tilfinninguna að maður ætti eiginlega ekki séns í hann. Það var upplifun og mjög skemmtilegt að fá að kljást við svona kalla.“

Evrópa eða Bandaríkin

Tryggvi segir líklegast að hann muni spila fyrst um sinn með Þór Akureyri sem verður nýliði í Domino’s-deildinni í vetur, að minnsta kosti þar til hann klárar rafvirkja­nám sitt um áramótin.

„Ég er búinn að hugsa mikið um þessi mál en býst ekki við því að taka endanlega ákvörðun fyrr en eftir landsleikjatörnina,“ segir Tryggvi Snær sem getur valið bæði um að gerast atvinnumaður í Evrópu eða að fara í háskóla í Bandaríkjunum. Spænska stórliðið Valencia hefur til að mynda gert honum tilboð.

„Stóra ákvörðunin er hvora leiðina ég vel – Bandaríkin eða Evrópu. Það eru kostir og gallar við báðar leiðir en ég hef marga ráðgjafa hér í landsliðinu sem ég get spjallað við. En sama hvað gerist þá er ljóst að ég mun alltaf hafa landsliðið í forgangi – það er alveg ljóst.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×