Uppfćrsla gerir út um símavandamál skeggjađra

Fréttablađiđ Tćkni og vísindi 11. febrúar 2012 08:30
Skegg getur skellt á viđmćlendur, en notendur sumra síma geta leyst vandann á einfaldan hátt.
Skegg getur skellt á viđmćlendur, en notendur sumra síma geta leyst vandann á einfaldan hátt.
Skeggjaðir menn hafa lent í vandræðum með snertiskjásímana sína sem lýsir sér þannig að skeggið skellir á viðmælendur. Fyrir suma ætti að vera einfalt mál að leysa vandann.

Tækni Alskegg er í tísku hjá karlmönnum víða um heim og þá sérstaklega í Reykjavík.

Skeggið hefur ýmsa kosti, eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum, en skeggsérfræðingurinn Stjúri, sem rekur rakarastofu í Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar, segir það meðal annars veita góða vörn fyrir bæði hita og kulda. Ókostirnir eru líka til staðar og einn af þeim einskorðast við menn sem nota síma með snertiskjá og þá sérstaklega Nokia N8.

Þeir sem eru með þykkt alskegg hafa lent í því að skjárinn nemi skeggið á meðan á samtali stendur með þeim afleiðingum að síminn skelli á eða setji viðmælandann á bið. Vandamálið má þó leysa á einfaldan hátt með því að hala niður Symbian Belle-uppfærslunni á heimasíðu Nokia.

Þorsteinn Þorsteinsson, vörustjóri farsíma hjá Hátækni, segir að vandinn hafi legið í skynjara í skjánum, en að það sé nú úr sögunni. „Það er búið að laga þetta vandamál með uppfærslum, en þeir sem voru með mikið skegg lentu frekar í þessu en hinir," segir hann.

Ókostirnir við alskeggið eru nokkrir í viðbót, eins og Stjúri kom að á dögunum. „Marga klæjar undan skegginu í fyrstu," segir hann. „Svo eiga matarleifar til að festast í því, en maður verður að vera duglegur að þrífa sig og forðast að borða eins og dýr." Þessi vandamál verða ekki leyst með hugbúnaðaruppfærslu.

atlifannar@frettabladid.is

Fleiri fréttir - Tćkni og vísindi

  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuđi

Fréttablađiđ

  • Forsíđa Fréttablađsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Allt

Skođun

Á Heimaey betur heima í ríkissjóđi?

Á Heimaey betur heima í ríkissjóđi?

Ţorsteinn Pálsson
Ný Heimaey í eigu Ísfélagsins kom fyrir skömmu til heimahafnar í Vestmannaeyjum. Margir hrukku í kút ţega...

Skođun

Bankablús

Bankablús

Ólafur Ţ. Stephensen
Viđbúiđ var ađ rekiđ yrđi upp margraddađ ramakvein ţegar Landsbankinn tilkynnti um uppsagnir og lokun úti...

Stöđ2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veđurfréttir
Ţú ert hér: Forsíđa / Fréttir / Tćkni og vísindi / Uppfćrsla gerir út um símavandamál skeggjađra