Körfubolti

Unicaja vann dramatískan sigur

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jón Arnór í leik með Unicaja.
Jón Arnór í leik með Unicaja. vísir/getty
Unicaja Malaga vann Dominion Bilbao Basket í framlengdum leik, 93-94, í spænska körfuboltanum, en lokaumferðin fór fram í kvöld.

Dominion Bilbao Basket var yfir eftir fyrsta leikhlutann 22-19, en Unicaja var yfir í hálfleik 36-41.

Staðan var jöfn að loknum venjulegum leiktíma, en þá var staðan jöfn 82-82.

Í framlengingunni reyndust gestirnir frá Malaga sterkari, en þeir unnu með eins stigs mun að lokum 94-93.

Unicaja endar í þriðja sætinu í deildinni, en liðið er með slakari innbyrðis árangur gegn Barcelona sem er í öðru sætinu. Unicaja mætir Gran Canaria í 8-liða úrslitum úrslitakeppnarinnar.

Jón Arnór Stefánsson spilar í tæpar átta mínútur og skoraði þrjú stig. Hann tók þar að auki eitt frákast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×