Bíó og sjónvarp

Ungur Svarthöfði greinist með geðklofa

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Lloyd var handtekinn í fyrra eftir að lögreglan elti hann á bíl á ofsahraða.
Lloyd var handtekinn í fyrra eftir að lögreglan elti hann á bíl á ofsahraða. Vísir
Leikarinn Jake Lloyd, sem er best þekktur fyrir að hafa leikið hinn 10 ára Anakin Skywalker í einni af Star Wars myndunum hefur verið greindur með geðklofa. Hann hefur setið í fangelsi frá því í fyrra en Lloyd var handtekinn í júní í fyrra eftir að lögreglan elti hann á bíl sem hann ók á yfir 160 kílómetra hraða. Eftir greininguna hefur leikarinn verður færður úr fangaklefa sínum inn á geðsjúkrahús.

Móðir leikarans segir son sinn hafa náð talsverðum bata frá því að hann kom á sjúkrahúsið en hún segir einnig að hann hafi ekki átt sjö dagana sæla frá því að hann fór með hlutverk hins unga Svarthöfða í The Phantom Menace. Honum hafi verið mikið strítt í skólanum og hafi misst töluvert úr skóla vegna fjölda viðtala sem hann þurfti að veita í kjölfar útgáfu myndarinnar.

Óvíst er hvort erfitt uppeldi vegna vinsælda Star Wars myndarinnar sé orsök að veikindum hans því geðklofi er heilasjúkdómur sem veldur breytingu á hugsun, hegðan og tilfinningum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×