Wenxia er tuttugu og þriggja ára tónlistarnemi sem stefnir á að verða tónlistarkennari að námi loknum. Í öðru sæti var fulltrúi Wales og í því þriðja fegurðardrottning frá Ástralíu. Fulltrúi Íslands í keppninni, Íris Thelma Jónsdóttir snyrtifræðingur, komst ekki í úrslitin.
Þrjár íslenskar fegurðardrottningar hafa hlotið titilinn ungfrú heimur. Þær Hólmfríður Karlsdóttir árið 1985, Linda Pétursdóttir árið 1988 og Unnur Birna Vilhjálmsdóttir árið 2005.