Ungabarn sem úrskurðað var látið á lífi

Vísir Erlent 27. ágúst 2010 08:15
Rætt var við hjónin í þættinum Today Tonight áströlsku sjónvarpsstöðinni Channel 7.
Rætt var við hjónin í þættinum Today Tonight áströlsku sjónvarpsstöðinni Channel 7.
Nýfætt barn sem ástralskir læknar höfðu úrskurðað látið komst aftur til lífs eftir að móðir þess hélt ungabarninu þétt upp að sér. Ýmsir telja þó að læknarnir hafi gert mistök.

Kate Ogg ól tvíbura, dreng og stúlku, á sjúkrahúsi í Ástralíu í vor en hún hafði þá einungis gengið með tvíburana í 27 vikur. Drengurinn andaði ekki og eftir um 20 mínútna baráttu var foreldrunum tilkynnt að hann væri látinn.

Kate sagði í viðtali við ástralska sjónvarpsstöð í gær að hún hafi aldrei upplifað annan eins sársauka og að henni og eiginmanni hennar hafi liðið afar illa. Kate sagðist hafa vafið drengnum, sem þau nefndu strax Jamie, í litla ábreiðu og haldið honum þétt upp að sér. Í framhaldinu hafi hjónin byrjað að tala við Jamie og sagt honum frá litlu systur hans, framtíðaráformum þeirra og hversu vænt þeim þætti um hann. Tveimur klukkustundum síðar byrjaði Jamie að sýna lífsmörk og skömmu síðar fór hann að anda eðlilega.

Jamie og systir hans eru nú fimm mánaða gömul og heilast báðum vel. Málið hefur vakið mikla athygli í Ástralíu og um leið heitar umræður. Ýmsir telja eðlilegt að beita óhefðbundunum aðferðum þegar um fyrirbura er að ræða og þá eru aðrir þeirra skoðunar að Jamie hafi allan tímann verði á lífi og að starfsfólk sjúkrahússins hafi orðið á alvarleg mistök.



Fleiri fréttir - Erlent

Erlent 13. feb. 2012 06:42

Miklar óeirðir á götum Aþenu í nótt

Miklar óeirðir voru á götum Aþenu og víðar í Grikklandi í gærkvöldi og langt fram á nótt m...  

Meira
Erlent 13. feb. 2012 03:13

Vega-flaug á loft í fyrsta sinn

Eldflaug af tegundinni Vega verður skotið á loft í fyrsta sinn, rétt fyrir hádegi í dag. G...  

Meira
Erlent 13. feb. 2012 03:13

Litlar líkur á ósigri forsetans

Ekki er mikilla tíðinda að vænta úr forsetakosningunum sem fóru fram í Túrkmenistan í gær....  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 22:00

Trylltur maður olli næstum flugslysi

Brasilísk farþegaþota neyddist til þess að lenda eftir að einn farþegi trylltist og réðist...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 23:29

Listamaðurinn fékk sjö verðlaun

Franska myndin Listamaðurinn fékk flest verðlaun á Bafta hátíðinni í kvöld, eða sjö talsin...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 21:00

Grammy-verðlaunin haldin í skugga andláts Whitney Houston

Grammy verðaunahátíðin verður haldin í kvöld í skugga sviplegs fráfalls söngdívunnar Whitn...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 17:51

Fimm ára stúlku bjargað úr snjóflóði - lá grafin í tíu klukkustundir

Fimm ára gamalli stúlku var bjargað eftir að hún lenti í snjóflóði ásamt fjölskyldu sinni ...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 15:51

Átta handteknir fyrir að slátra villtum dýrum

Lögreglan í Bangkok í Tælandi handtók átta manns fyrir að slátra villtum dýrum. Í raun var...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 15:29

Aðstoðarmaður forseta Kongó látinn - fjármálaráðherrann slasaður

Aðstoðarmaður forseta Kongó, Augustin Katumba Mwanke, lést þegar einkaflugvél sem hann var...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 12:15

Kafteinn klúður: Myndband sýnir aðgerðarleysi skipstjórans

Myndband sem sýnir viðbrögð skipstjóra skemmtiferðaskipsins Costa Concordia, sem strandaði...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 10:15

Romney sigraði í Maine fylki

Mitt Romney, sigraði í forkosningu repúblikanaflokksins í Maine fylki í Bandaríkjunum í gæ...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 10:03

Grunur leikur á að Whitney hafi drukknað í baðkari

Grunur leikur á að söngdívan Whitney Houston hafi drukknað í baðkari á hóteli sínu þar sem...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 09:52

Fannst látin á hótelherbergi

Bandaríska söng- og leikkonan Whitney Houston er látin, 48 ára að aldri. Hún fannst látin ...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 03:13

Whitney Houston látin

Söngkonan Whitney Houston er látin, 48 ára að aldri. Talskona hennar staðfestir þetta í sa...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Erlent / Ungabarn sem úrskurðað var látið á lífi