Innlent

Undirbýr bætur fyrir þá sem eru á lífi

Snærós Sindradóttir skrifar
Guðrún Ögmundsdóttir, tengiliður vegna vistheimila.
Guðrún Ögmundsdóttir, tengiliður vegna vistheimila. vísir/gva
Undirbúningur er að hefjast til að greiða þeim vistmönnum á Kópavogshæli, sem eru enn á lífi, bætur fyrir þá vanrækslu sem þeir þurftu að sæta. Vistheimilanefnd telur að hundrað börn, sem vistuð voru á Kópavogshæli, séu enn á lífi.

Samkvæmt lögum um sanngirnisbætur verða ákveðin skilyrði að vera fyrir hendi til að einstaklingur eigi rétt á bótum. Einstaklingur verður að hafa orðið fyrir illri meðferð eða ofbeldi meðan á vistuninni stóð sem olli viðkomandi varanlegum skaða. Með því er átt við refsiverða líkamlega valdbeitingu eða valdbeitingu þar sem óþarfa sársauka var valdið. Ógnandi eða niðurlægjandi athöfn gagnvart barni eða athafnir sem eru til þess fallnar að misbjóða barni eða vanrækja uppeldi þess þannig að líkamleg og andleg heilsa þess sé hætt búin. Upphæð sanngirnisbóta miðast við alvarleika ofbeldisins. Hámark þeirra er 6 milljónir króna.

Guðrún Ögmundsdóttir hefur það hlutverk að fara yfir skýrsluna og aðstoða þá vistmenn sem mögulega eiga rétt á bótum við að útbúa bótakröfu og skila inn viðhlýtandi gögnum þess efnis. Starfsmenn sýslumanns koma svo til með að fara yfir skýrsluna og gera þessum hundrað einstaklingum, eða hluta þeirra, tilboð um bætur. 

„Ég vissi alveg að niðurstaðan gæti orðið mjög alvarleg. Nú þarf ég bara að leggjast yfir skýrsluna og breyta vinnulaginu því þetta er öðruvísi hópur. Ef þú ert með fólk sem getur lítið tjáð sig þarf að finna aðrar leiðir.“

Nú þegar liggur fyrir að 80 milljónir eru til reiðu í sanngirnisbætur. Ekki er útilokað að aukafjárveiting verði sótt í ríkissjóð svo hækka megi bæturnar. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.



Uppfært 10:20: Í upphaflegri frétt stóð að Guðrún Ögmundsdóttir tæki ákvörðun um bætur til vistmanna á Kópavogshæli. Hið rétta er að hún er tengiliður stjórnvalda við þessa einstaklinga og kemur til með að gera tillögu um áframhald málsins og aðstoða við bótakröfu. 


Tengdar fréttir

Kalla eftir bótakröfum fórnarlamba í skólum

Fyrrverandi nemendur Heyrnleysingjaskólans fyrir árið 1947 og eftir 1992 geta nú sótt um sanngirnisbætur úr ríkissjóði vegna illrar meðferðar í skólanum. Einnig er kallað eftir bótakröfum fyrrverandi nemenda í Landakotsskóla.

Nærri 80 fórnarlömb vilja sanngirnisbætur

Stefnt er að því að niðurstaða um bótagreiðslur til fyrrverandi nemenda Landakotsskóla og nemenda Heyrnleysingjaskólans fyrir 1947 og eftir 1992 vegna illrar meðferðar liggi fyrir í ágúst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×