Innlent

Undir áhrifum fíkniefna á ótryggðum bílum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ökumennirnir voru allir undir áhrifum kannabis.
Ökumennirnir voru allir undir áhrifum kannabis. Vísir/Getty
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í nótt þrjá ökumenn sem óku undir áhrifum fíkniefna. Allir höfðu þeir neytt kannabis og tveir voru líka undir áhrifum amfetamíns. Þá voru tveir ökumannanna á ótryggðum bílum. Þá var einn tekinn vegna ölvunaraksturs.

Þá kemur einnig fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum að fimm ökumenn hafi verið kærðir fyrir ofan hraðan akstur í umdæminu seinustu daga. Sá sem hraðast fór mældist á 155 kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni en þar er hámarkshraði 90 kílómetrar á klukkustund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×