Körfubolti

Umfjöllun og viðtöl: Snæfell - Keflavík 72-68 | Snæfell batt enda á sigurgöngu Keflavíkinga

Arnór Óskarsson í Stykkishólmi skrifar
Gunnhildur Gunnarsdóttir, fyrirliði Snæfells.
Gunnhildur Gunnarsdóttir, fyrirliði Snæfells. Vísir/Eyþór
Snæfell sigraði Keflavík naumlega, 72-68, eftir kaflaskiptan leik í Stykkishólmi í kvöld.

Keflavík, sem sat á toppi Domino’s deild kvenna, lenti snemma undir á móti sprækum heimastúlkunum.

Í lok fyrri hálfleiks var Snæfell 15 stigum yfir og margt sem benti til að öruggur sigur Hólmara væri í vændum.

Viðsnúningur varð hins vegar í seinni hálfleik en þó first og fremst í þriðja leikhluta.

Á meðan Keflavíkurstúlkur sýndu ótrúlega baráttugleði gekk lítið sem ekkert upp í sóknar- og varnarleik Snæfells.

Niðurstaðan varð jafn og spennandi leikur.

Af hverju vann Snæfell?

Snæfell byrjaði leikinn með látum. Varnar- og sóknarleikur í fyrri hálfleik var til fyrirmyndar.

 

Margir leikmenn í liði Snæfells komu þar við sögu en allir sem einn leystu sín verkefni og hlutverk vel í byrjun leiks.

Þó ber sérstaklega að nefna Berglindi Gunnarsdóttur og nýja leikmann Snæfells Aaryn Ellenberg sem voru áberandi í sóknarleik Snæfells í fyrri hálfleik.

Bestu menn vallarins:

Aaryn Ellenberg átti góða byrjun í fyrsta leiknum sínum með Snæfelli og endaði með 26 stig.

Berglind Gunnarsdóttir átti einnig góðan leik á köflum en hún skoraði fyrstu 10 stigin fyrir Snæfell í kvöld.

Hjá Keflavík var það Erna Hákonardóttir sem var stigahæst með 16 stig.

Óhætt er þó að fullyrða að allt Keflavíkurliðið hafi barist vel og því liðsheildin í raun besti maður þeim megin.

Tölfræðin sem vakti athygli:

Ótrúleg endurkoma Keflavíkur er hófst undir lok fyrri hálfleiks og endaði ekki fyrr en örfáar sekúndur voru eftir af leiknum vakti eflaust mestu athyglina í kvöld.

Hvað gekk illa?

Bæði lið áttu í erfiðleikum með sitthvorn hálfleikinn.

Í raun áttu heimamenn fyrri hálfleik á meðan gestirnir gátu sýnt hvað í þeim býr í þeim seinni.

Ingi Þór: Svart og hvítt hjá okkur í kvöld

„Við komum í sitthvorum lit til hálfleikana og greinilgt að okkur leið allt of vel í hálfleik með stöðuna,“ segir Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, eftir sigurinn á Keflavík í kvöld.

Varðandi þriðja leikhluta sagði Ingi Þór: „Við hættum að sækja að körfuni og klárum ekki auðveld færi sem við sköpuðum okkur.“

Fyrirliði Snæfells, Gunnhildur Gunnarsdóttir, var mikilvæg á lokakaflanum og kveikti aftur í liðinu sínu.

„Fyrirliðin okkar stígur upp á háréttum tíma og setur niður fimm stig í fjórða leikhluta sem kveikti aftur í liðinu. Það er einmitt það sem fyrirliði á að gera.“

Sverrir Þór: Hrikalega stoltur af liðinu

„Við áttum fullt af sénsum í lokin til að jafna og jafnvel til að komast yfir,“ segir Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Keflavíkur, sem var svekktur með úrslitin í Stykkishólmi í kvöld.

„Við erum að spila skelfilega í 16 mínútur í fyrri hálfleik og erum þrátt fyrir það bara 15 stigum undir. Svo mætum við af krafti í seinni hálfleik og það er ekkert verið að gefast upp. Ég er hrikalega ánægður með það.“

„Það vantaði rosalega lítið upp á að við myndum fara með tvö stig heim í kvöld,“ sagði Sverrir Þór og bætti við: „Ég hefði viljað tala við þig núna og tala um leik sem við hefðum tekið í restina.“

Fyrri hálfleikurinn hjá Keflavík einkenndist af smá hræðslu og virðingu.

„Í fyrri hálfleik var smá hræðsla og við vorum langt frá okkar mönnum. Bara of mikill virðing. En í seinni hálfleik vorum við nær mönnunum og ekki að gefa nein opin skot. Við spiluðum miklu betri vörn, fáum auðveldar körfur og meira sjálfstraust.“

Bein lýsing: Snæfell - Keflavík:




Fleiri fréttir

Sjá meira


×