Umfjöllun og viðtöl: HK - Fram 23-24 | Fram í bikarúrslitin

Vísir Handbolti 13. febrúar 2012 12:53
Umfjöllun og viðtöl: HK - Fram 23-24 | Fram í bikarúrslitin
Mynd/Stefán
Guðmundur Marinó Ingvarsson í Digranesi skrifar:
Fram mætir Haukum í úrslitum Eimskipsbikars karla eftir ótrúlegan sigur á HK 24-23 á útivelli í kvöld þar sem Sigurður Eggertsson skoraði sigurmarkið beint úr aukakasti eftir að leiktíminn var liðinn.

Fram leiddi leikinn nánast frá byrjun en HK réð illa við 5-1 vörn Fram auk þess sem markvarsla liðsins var nánast engin. Fram náði mest fimm marka forystu í fyrri hálfleik og var fjórum mörkum yfir þegar flautað var til leikhlés 14-10.

HK mætti mjög ákveðið til leiks í seinni hálfleiks og skoraði þrjú fyrstu mörkin en Fram svaraði að bragði og hélt frumkvæðinu. Þegar seinni hálfleikur var hálfnaður var fimm marka munur 20-15 og ekkert sem benti til þess að leikurinn yrði spennandi í lokin.

Þá dró Ólafur Bjarki Ragnarsson lið sitt inn í leikinn auk þess sem vörn HK fór að smella. Staðan var orðin jöfn þegar þrjár mínútur voru eftir og allt á suðupunkti í húsinu en áhorfendur fjölmenntu sem aldrei fyrr og mikill hávaði var í húsinu.

HK vann boltann þegar mínúta var eftir en tókst ekki að ná góðu skoti á markið og Fram fékk síðustu sókn leiksins þegar 19 sekúndur voru eftir. Fram náði aldrei að ógna markinu en fengu aukakastið sem Sigurður tók. Sigurður setti boltann á miðjan vegginn þar sem myndaðist glufa og boltinn söng í netinu.

Fram því komið í úrslit Eimskipsbikarsins í fyrsta sinn frá árinu 2008.


Umfjöllun og viðtöl: HK - Fram 23-24 | Fram í bikarúrslitin
Mynd/Stefán
Einar: Klikkaðir menn sigurvegarar á svona stundum
"Þetta var alvöru, algjör snilld. Ég var að blóta því hvað Siggi væri að taka þetta en hann svaraði kallinu," sagði Einar Jónsson þjálfari Fram að leiknum loknum.

"Annað liðið þurfti að vinna. Við vorum yfir allan leikinn og vorum mjög flottir í leiknum. Við vorum orðnir þreyttir undir lokin og með menn nýstigna upp úr meiðslum. Róbert Aron, Ingimundur og Jóhann Gunnar allir að spila sína fyrstu leiki á árinu og eðlilega vorum við orðnir þreyttir en við héldum haus og ég er ótrúlega stoltur af liðinu að klára þetta."

"Við sýndum hversu megnugir við erum. Nú er dúkurinn framundan. Ég get ekkert verið heima að horfa á sjónvarpið þegar það eru bikarúrslit. Þess vegna tók ég við karlaliðinu," sagði Einar sem stýrt hefur kvennaliði Fram til sigurs í bikarnum tvö síðustu árin.

"5-1 vörnin var mjög góð allan leikinn og mér fannst þeir aldrei leysa hana. Óli Bjarki sýndi hvað hann er góður í handbolta og kom þeim inn í leikinn einn síns liðs. Hann reyndi en við náðum að klára þetta og það er frábært."

"Ég hef oft verið með klikkaða menn og það er á svona stundum sem þeir eru sigurvegarar og nú erum við að græða á því," sagði Einar að lokum.


Umfjöllun og viðtöl: HK - Fram 23-24 | Fram í bikarúrslitin
Mynd/Stefán
Vilhelm: Áttum að klára þetta
"Ég er að reyna að átta mig á því hvað gerist í veggnum í lokin. Það er eins og menn þori ekki að vera fyrir boltanum. Siggi er fastur en það er höllin undir," sagði Vilhelm Gauti fyrirliði HK í leikslok.

"Vogun vinnur, vogun tapar, ef þú hendir þér fyrir boltann þá erum við á leið í framlengingu en ég veit ekki hvort hann stígur frá eða ekki."

"Þetta var spennandi leikur, við grófum okkur djúpa holu en vorum komnir upp úr henni og í séns. Við áttum að klára þetta. Þetta var stöngin inn eða stöngin út og þetta var því miður stöngin inn hjá Fram. Við erum betri en þeir en þeir kláruðu þetta, þeir hittu á sinn dag," sagði Vilhelm að lokum.

Þessi síða uppfærist sjálfkrafa á 30 sekúndna fresti

Boltavaktin:

Fleiri fréttir - Handbolti

Handbolti 26. maí. 2012 15:52

Í beinni: AG Kaupmannahöfn - Atlético Madrid

Boltavakt Vísis býður upp á beina textalýsingu frá undanúrslitaviðureign AG Kaupmannahafna...  

Meira
Handbolti 26. maí. 2012 15:46

Umfjöllun: Füchse Berlin - Kiel 24-25 | Hetjuleg barátta Berlínarliðsins ekki nóg

Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel tryggðu sér í dag sæti í úrslitaleik Meistaradeildar...  

Meira
Handbolti 26. maí. 2012 15:55

Alexander: Vonandi fáum við AG

Alexander Petersson var vitanlega svekktur með niðurstöðuna eftir leik sinna manna í Füchs...  

Meira
Handbolti 26. maí. 2012 12:56

Alfreð: Þetta er besta handboltamót í heimi

Vísir hitti á Alfreð Gíslason, þjálfara Kiel, skömmu fyrir leik liðsins gegn Füchse Berlin...  

Meira
Handbolti 26. maí. 2012 12:15

Hitað upp fyrir Final Four | Myndir

Um 20 þúsund manns munu í dag troðfylla hina glæsilegu Lanxess-höll í Köln þegar undanúrsl...  

Meira
Handbolti 26. maí. 2012 11:55

Hinn íslenskættaði Gísli spáir AG sigri

Blaðamaður Vísis rakst á hóp stuðningsmanna danska liðsins AG fyrir utan Lanxess-höllina í...  

Meira
Handbolti 26. maí. 2012 10:00

Ólafur: Kominn í mitt besta form

"Það er mjög sérstakt að vera kominn aftur til Kölnar,“ sagði Ólafur Stefánsson á bl...  

Meira
Handbolti 26. maí. 2012 09:00

Tvö lið af fjórum nýliðar

Füchse Berlin og AG frá Kaupmannahöfn eru bæði komin áfram í undanúrslit Meistaradeildar E...  

Meira
Handbolti 26. maí. 2012 08:00

Fyrstu handboltaleikirnir í þrívídd

Það verður engu til sparað í umfjöllun og umgjörð þegar að úrslitin ráðast í Meistaradeild...  

Meira
Handbolti 26. maí. 2012 07:00

Aron Kristjáns: Danirnir eiga góðan séns

Um helgina ráðast úrslitin í Meistaradeild Evrópu í Köln í Þýskalandi. Fjögur bestu félags...  

Meira
Handbolti 26. maí. 2012 06:00

Pistillinn: Þér er boðið í stærstu veislu ársins

Íslenskir handboltaunnendur eru góðu vanir eftir frábæran árangur strákanna okkar síðustu ...  

Meira
Handbolti 25. maí. 2012 22:45

Dagur: Mikilvægasti leikur ferilsins

Dagur Sigurðsson var kokhraustur fyrir undanúrslitaleikinn gegn hinu geysisterka liði Kiel...  

Meira
Handbolti 25. maí. 2012 21:41

Gunnar Berg og Skúli þjálfa Stjörnuliðin

Handknattleiksdeild Stjörnunnar tilkynnti í kvöld um ráðningu á þjálfurum meistaraflokka f...  

Meira
Handbolti 25. maí. 2012 18:00

Alfreð: Meistaradeildin mikilvægari en þýska úrvalsdeildin

Alfreð Gíslason sat fyrir svörum á blaðamannafundi fyrir úrslitahelgi Meistaradeildar Evró...  

Meira
Handbolti 25. maí. 2012 16:15

Ólafur vildi ekki snerta Meistaradeildarbikarinn

Ekstra Bladet skrifar í dag um þá sérvisku íslenska landsliðsmannsins Ólafs Stefánssonar a...  

Meira
Handbolti 25. maí. 2012 16:00

Liðsfélagar Guðjóns Vals hrósa honum í hástert

Guðjón Valur Sigurðsson verður í sviðsljósinu með AG Kaupmannahöfn á úrslitahelgi Meistara...  

Meira
Handbolti 25. maí. 2012 07:00

Ólafur getur unnið í þriðja landinu

Ólafur Stefánsson á möguleika á því að vinna Evrópukeppni meistaraliða í fimmta sinn á fer...  

Meira
Handbolti 24. maí. 2012 17:45

Ágúst og Rakel Dögg stofna saman Handknattleiksakademíu

Ágúst Jóhannsson landsliðsþjálfari kvenna og Rakel Dögg Bragadóttir fyrirliði landsliðs kv...  

Meira
Handbolti 24. maí. 2012 10:16

Kvennalandsliðið mætir U-16 liði karla

A-landslið kvenna í handbolta mun í kvöld leika æfingaleik gegn íslenska piltalandsliðinu ...  

Meira
Handbolti 24. maí. 2012 08:00

Snorri Steinn: Mætum óhræddir til leiks

Úrslitin í Meistaradeild Evrópu í handbolta ráðast um helgina. Þá fara fram undanúrslit og...  

Meira
Handbolti 24. maí. 2012 07:30

Óli er maður stóru leikjanna

Ólafur Stefánsson mun mæta sínum gömlu félögum í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á la...  

Meira
Handbolti 23. maí. 2012 22:39

Heimir Óli búinn að semja við GUIF

Haukamaðurinn Heimir Óli Heimisson er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við sænska...  

Meira
Handbolti 23. maí. 2012 19:40

Fínn leikur Hannesar dugði ekki til sigurs

Íslendingaliðið Hannover-Burgdorf varð að sætta sig við tap, 35-37, á heimavelli gegn Gumm...  

Meira
Handbolti 22. maí. 2012 23:30

Guðmundur grillar ofan í stuðningsmenn Löwen

Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Rhein-Neckar Löwen, og lærisveinar hans verða með grillspa...  

Meira
Handbolti 22. maí. 2012 20:30

Þrjú ný félög í N1-deild kvenna

Alls verða tólf lið í N1-deild kvenna næsta vetur þar sem þrjú ný félög hafa boðað þáttöku...  

Meira
Handbolti 22. maí. 2012 13:00

Anton til Danmerkur

Anton Rúnarsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við danska úrvalsdeildarfélagið Sö...  

Meira
Handbolti 21. maí. 2012 20:00

Noregur, Króatía og Pólland berjast um EM 2016

Þrjú lönd eru enn í baráttunni um að halda EM í handbolta árið 2016. Það verður ákveðið í ...  

Meira
Handbolti 21. maí. 2012 13:30

Lövgren lofar Ólaf og Alexander

Úrslitin í Meistaradeild Evrópu ráðast í Köln í Þýskalandi um helgina og hefur Svíinn Stef...  

Meira
Handbolti 21. maí. 2012 07:00

Þórir: Togaði í að fá að spila í Meistaradeildinni og að vinna titla

Þórir Ólafsson og félagar í Vive Targi Kielce urðu um helgina pólskir meistarar í handbolt...  

Meira
Handbolti 20. maí. 2012 21:36

Sunneva Einarsdóttir ver mark Stjörnunnar á næsta tímabili

Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur gert samning við markvörðinn Sunnevu Einarsdóttir en...  

Meira
Handbolti 20. maí. 2012 20:30

Stefnir allt í fullkomið tímabil hjá Kiel | 32 sigrar í röð

Það virðist ekkert geta komið í veg fyrir það að þýska handknattleiksliðið Kiel skrái sig ...  

Meira
Handbolti 20. maí. 2012 19:21

Jón Heiðar gengur til liðs við ÍR

Handknattleiksmaðurinn Jón Heiðar Gunnarsson hefur ákveðið að ganga til liðs við ÍR og mun...  

Meira
Handbolti 20. maí. 2012 07:00

Þórey og Rut rétt misstu af bronsinu

Íslensku landsliðskonunar Rut Jónsdóttir og Þórey Rósa Stefánsdóttir urðu í fjórða sæti me...  

Meira
Handbolti 19. maí. 2012 19:42

Fimm mörk Kára ekki nóg á móti Hamburg - mikilvægt hjá Bergischer

Kári Kristjánsson skoraði 5 mörk fyrir HSG Wetzlar þegar liðið tapaði 26-28 á heimavelli f...  

Meira
Handbolti 19. maí. 2012 17:02

AG í úrslitaleikinn um titilinn - Ólafur mjög góður í sigri á Kolding

AG Kaupmannahöfn tryggði sér sæti í úrslitaeinvíginu um danska meistaratitilinn í handbolt...  

Meira
Handbolti 19. maí. 2012 14:28

Þórir pólskur meistari í handbolta

Þórir Ólafsson og félagar í Vive Targi Kielce urðu nú áðan pólskir meistarar í handbolta e...  

Meira
Handbolti 18. maí. 2012 19:30

Mikilvægur sigur hjá Füchse Berlin

Lærisveinar Dags Sigurðssonar hjá Füchse Berlin færðust í kvöld skrefi nær því að tryggja ...  

Meira
Handbolti 17. maí. 2012 22:45

Þjálfari Rúnars Kárasonar rekinn

Rúnar Kárason fær senn nýjan þjálfara hjá þýska úrvalsdeildarfélaginu Bergischer HC þar se...  

Meira
Handbolti 17. maí. 2012 21:15

Alfreð: Slekk á símanum í 3-4 vikur og sinni garðinum

Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel í Þýskalandi, segir að það sé mikilvægt að hvílast vel þega...  

Meira
Handbolti 17. maí. 2012 16:32

Benedikt Reynir til liðs við Aftureldingu

Mosfellingar hafa fengið liðsstyrk fyrir næsta tímabil í N1-deild karla en Benedikt Reynir...  

Meira
Handbolti 17. maí. 2012 12:45

Sögusagnir í Þýskalandi: Guðmundur að hætta með Löwen

Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands og þjálfari Rhein-Neckar Löwen, gæti veri...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 20:25

Hrun hjá Löwen í seinni hálfleik

Rhein-Neckar Löwen steinlá fyrir Flensburg á heimavelli í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld, 3...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 19:46

Kiel enn ósigrað í Þýskalandi

Kiel hélt áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta með sex mar...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 19:31

Rut og Þórey nálgast bronsið

Þórey Rut Stefánsdóttir og Rut Jónsdóttir skoruðu sitt markið hvor þegar að lið þeirra, Te...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 17:44

Vignir í fjórtán daga bann

Vignir Svavarsson hefur verið dæmdur í tveggja vikna bann vegna rauða spjaldsins sem hann ...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 11:57

Sunna kölluð inn í A-landsliðið

Ágúst Þór Jóhannsson landsliðsþjálfari kvenna í handbolta hefur þurft að gera eina breytin...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 08:00

Pistillinn: Hver er þróun kvennahandboltans?

Eftir að hafa fylgst með undanúrslitum Íslandsmótsins í handknattleik hugsar maður hvert k...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 06:00

Spenntur fyrir landsliðinu

Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, segir að mest spennandi þjálfarastarf á Íslandi sé land...  

Meira
Handbolti 15. maí. 2012 17:16

Gunnar Berg tekur við Stjörnunni

Gunnar Berg Viktorsson mun að óbreyttu taka við þjálfun karlaliðs Stjörnunnar í handbolta....  

Meira
Handbolti 15. maí. 2012 12:30

HK missir Elínu Önnu yfir í FH

Elín Anna Baldursdóttir, markahæsti leikmaður HK í úrslitkeppni N1 deildar kvenna og einn ...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Handbolti / Umfjöllun og viðtöl: HK - Fram 23-24 | Fram í bikarúrslitin