Íslenski boltinn

Umfjöllun og myndir: Þór/KA - Breiðablik 1-2 | Tíu ára bið Blika á enda

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
vísir/auðunn níelsson
Breiðablik eru Íslandsmeistarar eftir 10 ára bið. Þetta var ljóst eftir 1-2 endurkomusigur Blika á Þór/KA fyrir norðan í kvöld.

Blikakonur hafa verið með langbesta liðið í Pepsi-deild kvenna í sumar og eru verðskuldaðir meistarar. Kópavogsliðið hefur skorað flest mörk allra liða (48) og aðeins fengið á sig fjögur mörk í 17 leikjum sem er mögnuð tölfræði.

Þetta var 16. Íslandsmeistaratitill Breiðabliks í kvennaflokki en ekkert lið hefur unnið titilinn jafn oft.

Auðunn Níelsson myndaði leikinn fyrir Vísi en afraksturinn má sjá hér að ofan.

Blikar voru heillum horfnir í fyrri hálfleik og voru heppnir að vera ekki nema 1-0 undir að honum loknum. Lillý Rut Hlynsdóttir kom Þór/KA yfir á 25. mínútu og á lokamínútu fyrri hálfleiks small boltinn svo í stöng Blikamarksins.

En leikurinn snerist algjörlega við í seinni hálfleik. Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Breiðabliks, gerði tvöfalda skiptingu i hálfleik og hún virkaði vel.

Blikar juku sóknarþungann, sem var enginn í fyrri hálfleik, og strax eftir tveggja mínútna leik jafnaði Telma Hjaltalín Þrastardóttir metin með frábæru skoti fyrir utan teig.

Gestirnir héldu áfram að þjarma að heimakonum með Svövu Rós Guðmundsdóttur í fantaformi á hægri kantinum.

Svava, sem kom til Blika frá Val fyrir tímabilið, lagði upp gott færi fyrir Fanndísi Friðriksdóttur á 55. mínútu og tveimur mínútum síðar komst Svava sjálf í dauðafæri en Roxanne Kimberly Barker varði skot hennar í stöng.

Roxanne kom hins vegar ekki neinum vörnum við á 62. mínútu þegar Fanndís skoraði sitt 19. deildarmark með góðu skoti frá vítapunkti eftir fyrirgjöf Svövu frá hægri.

Blikar voru nær því að bæta þriðja markinu við en norðanstúlkur að jafna og svo fór að Blikar unnu 1-2 sigur sem tryggði þeim langþráðan Íslandsmeistaratitil.

vísir/auðunn níelsson
vísir/auðunn níelsson
vísir/auðunn níelsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×