Umfjöllun: FH ósigrað á heimavelli í sumar Guðmundur Marinó Ingvarsson á Kaplakrikavelli skrifar 25. september 2011 15:00 Atli Viðar Björnsson skoraði 2 mörk og lagði upp eitt. Mynd/Hag
FH lagði ÍBV að velli 4-2 á heimavelli sínum að Kaplakrika. Þetta var síðasti heimaleikur FH sem tapaði ekki leik á heimavelli í sumar en þessum sigri var lítt fagnað því ljóst var eftir leikinn að KR er Íslandsmeistari 2011. ÍBV byrjaði leikinn frábærlega en misstu Tryggva Guðmundsson af leikvelli skömmu áður en Eyjamenn komust yfir úr vítaspyrnu á 19. mínútu en þá breyttist leikurinn. FH fór að sjá meira af boltanum og Eyjamenn misstu allt bit fram á við. Þó verður ekki sagt að FH hafi vaðið í færum en Atli Guðnason fór fyrir þeim sóknum FH sem ógnuðu marki ÍBV en hann jafnaði metin og lagði upp annað markið sem Atli Viðar skoraði rétt fyrir leikhlé. Það var ekki mikið um opin færi í seinni hálfleik. Eyjamenn létu Gunnleif Gunnleifsson þó hafa fyrir hlutunum með nokkrum góðum skotum utan teigs en FH náði tveggja marka forystu á 57. mínútu og þó ÍBV hafi með baráttu sinni náð að minnka muninn skoraði FH aftur og vann að lokum verðskuldaðan sigur. FH er þar með komið í annað sæti deildarinnar og búið að tryggja sér Evrópusæti að ári en ÍBV fór fyrir vikið niður í þriðja sætið en Eyjamenn hefðu þurft að vinna til að eiga enn möguleika á að ná KR að stigum. Bæði lið gengu niðurlút af velli því titilinn fór í vesturbæ Reykjavíkur en Eyjamenn þurfa stig í lokaumferðinni til að tryggja sér Evrópusæti að ári, fari svo að Stjarnan vinni sinn leik í lokaumferðinni, gegn Breiðabliki í Kópavogi.FH-ÍBV 4-2Mörkin: 0-1 Aaron Spear (19.) 1-1 Atli Guðnason (27.) 2-1 Atli Viðar Björnsson (44.) 3-1 Atli Guðnason (57.) 3-2 Tony Mawejje (61.) 4-2 Atli Viðar Björnsson (72.) Kaplakrikavöllur. Áhorfendur: 1780 Dómari: Magnús Þórisson 6Tölfræðin: Skot (á mark): 10-12 (7-8) Varið: Gunnleifur 5 – Abel 2 Hornspyrnur: 4-3 Aukaspyrnur fengnar: 6-13 Rangstöður: 1-0
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti Átta rauð spjöld í sama leiknum Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Sport McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Enski boltinn Fleiri fréttir Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Sjá meira