LAUGARDAGUR 25. MAÍ NÝJAST 21:08

Lahm þriðji Bæjarinn til að lyfta bikarnum með stóru eyrun

SPORT

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍA - KR - 3-2

Vísir Íslenski boltinn 10. maí 2012 13:45
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍA - KR - 3-2
MYND/GUÐMUNDUR BJARKI HALLDÓRSSON
Stefán Árni Pálsson á Akranesvelli skrifar:
Nýliðarnir frá Akranesi halda áfram að spila vel og gerðu sér lítið fyrir og unnu Íslandsmeistara KR, 3-2, á heimavelli í kvöld. Frábær fimm marka leikur og Skagamenn eru greinilega til alls líklegir í sumar.

KR-ingar voru ívið sterkari til að byrja með og ákveðnir í öllum sínum aðgerðum. Skagamenn virkuðu örlítið úr takti og héldu bolta illa. KR-ingar létu boltann ganga vel á milli sín og náðu að opna vörn Skagamanna oft á tíðum illa.

Eftir rúmlega tíu mínútna leik kom fyrsta mark leiksins þegar Þorsteinn Már Ragnarsson, leikmaður KR, stimplaði sig inn í KR liðið með fyrsta marki sínu í efstu deild karla. Óskar Örn Hauksson, leikmaður KR, átti frábæra stungusendingu inn fyrir vörn ÍA, Þorsteinn tók vel á móti boltanum og skaut knettinum laglega í netið.

KR-ingar tóku öll völdin á vellinum næstu mínútur en þegar leið á fyrri hálfleikinn komust heimamenn meira og meira í takt við leikinn. Fimm mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks fengu Skagamenn aukaspyrnu á góðum stað, fínt færi fyrir Jóhannes Karl Guðjónsson, en hann gerði sér lítið fyrir og þrumaði boltanum í samskeytin. Staðan var því 1-1 í hálfleik.

Skagamenn byrjuðu seinni hálfleikinn frábærlega og skoruðu sitt annað mark eftir aðeins nokkrar mínútur. Andri Adolphsson átti frábæra fyrirgjöf inn í vítateig KR-inga þar sem Arnar Már Guðjónsson var mættur og stýrði boltanum í netið. Heimamenn allt í einu komnir yfir.

Skagamenn voru sterkari næstu mínútum og alveg eins líklegir til að bæta við öðru marki. KR-ingar gáfust samt sem áður aldrei upp og reyndu allt sem þeir gátu til að jafna metin. Þegar um fimmtán mínútur voru eftir af leiknum kom jöfnunarmarkið þegar Kjartan Henry Finnbogason skoraði frábært mark með skalla.

Óskar Örn Hauksson átti gjörsamlega stórkostlega sendingu inn í vítateig Skagamanna þar sem Kjartan stangaði boltann í netið.

Gary Martin, leikmaður ÍA, kórónaði frábæran leik sinn þegar lítið var eftir af leiknum þegar hann tryggði ÍA öll stigin þrjú. Þegar um tíu mínútur voru eftir af leiknum átti Dean martin frábæra stungusendingu inn fyrir vörn KR.

Hannes Þór Halldórsson, markvörður KR, fór út í einkennilegt úthlaup sem Gary Martin nýtti sér og vippaði boltanum yfir Hannes og í netið. Skagamenn unnu því frábæran sigur og því með sex stig eftir tvær umferðir.





Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍA - KR - 3-2
MYND/PJETUR
Þórður: Ég bjóst alveg eins við þessu
„Þetta var frábær sigur og ég bjóst alveg við þessu," sagði Þórður Þórðarson, þjálfari ÍA, eftir sigurinn í kvöld.

„Við fáum á okkur tuttugu hornspyrnur sem er ótrúlegt og vorum í miklum vandræðum með þá í fyrri hálfleiknum. KR-ingar voru fyrsti í nánast alla bolta til að byrja með. Við vorum heilt yfir betri aðilinn í síðari hálfleiknum."

„Það sem ég er sérstaklega ánægður með er að við höldum alltaf áfram í leiknum og höfum greinilega trú á því sem við erum að gera."

„KR er með frábært lið og með fína leikmenn í öllum stöðum og því er þetta flottur árangur en núna horfum við bara fram á þriðjudag þegar við mætum Fylki."


Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍA - KR - 3-2
MYND/GUÐMUNDUR BJARKI HALLDÓRSSON
Kjartan: Við vorum betri en þeir skoruði fleiri mörk
„Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá fannst mér við miklum betri aðilinn í kvöld," sagði Kjartan Henry Finnbogason, leikmaður KR, eftir tapið í kvöld.

„Það er aftur á móti ekki spurt að því í fótbolta. Við sváfum á verðinum í lokin og það varð okkur að falli. Jói Kalli skoraði auðvita frábært mark en mér fannst aukaspyrnan frekar væg sem hann fékk. Þeir skoruðu bara fleiri mörk en við í kvöld og mörk vinna víst fótboltaleiki."

KR-ingar hafa aðeins náð í eitt stig eftir tvær umferðir sem er nokkuð undir væntingum í vesturbænum.

„Það er ekki nægilega gott en Skagamenn eru með frábært lið og eiga svo sannarlega skilið að vera í deild þeirra bestu.Við verðum að halda einbeitingu í 90 mínútur og gera ekki svona barnaleg mistök eins og sáust í kvöld, þá fer þetta að ganga betur."


Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍA - KR - 3-2
MYND/GUÐMUNDUR BJARKI HALLDÓRSSON
Gary Martin: Það er heiður að vera í þessari deild
„Þetta var magnaður leikur og maður sér greinilega af hverju þetta lið er Íslandsmeistarar," sagði Gary Martin, hetja Skagamanna, eftir leikinn í kvöld.

„Það er bara heiður að vera komin í efstu deild. Það er mikill munur liðnum í efstu deildinni og í deildinni sem við lékum í á síðasta tímabili. Það eru frábærir leikmenn í KR-liðinu eins og Óskar Örn, Bjarni og Kjartan Henry og því var þessi sigur magnaður af okkar hálfu."

Jóhannes Karl Guðjónsson skoraði frábært mark beint úr aukaspyrnu í kvöld en Gary vildi meina að hann hefði átt að taka spyrnuna.

„Hann var búinn að setja eitt skot í slána og ég reifst aðeins við hann um að taka spyrnuna, en hann gaf sig ekkert, sem betur fer kannski."

Gary Martin skoraði sigurmark leiksins eftir mikinn darraðardans í vörn KR-inga.

„Ég heyrði að varnarmennirnir voru í vandræðum hvað ætti að gera við boltann og skyldu kannski ekki alveg hvorn annan. Þetta varð ég að nýta mér og lyfti boltanum yfir markmanninn."

Þessi síða uppfærist sjálfkrafa á 30 sekúndna fresti

Boltavaktin:

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Íslenski boltinn 25. maí 2013 18:35

Leiknismenn í góðum gír á Húsavík

Leiknismenn sóttu þrjú stig á Húsavík í kvöld þegar liðin mættust í 3. umferð 1. deildar karla. Reykjavíkurmeistararnir voru búnir að gera jafntefli í fyrstu tveimur leikjum sínum en lönduðu nú fyrsta... Meira
Íslenski boltinn 25. maí 2013 15:52

Scott Ramsay með tvö mörk í Grindavíkursigri

Grindvíkingar unnu 6-1 stórsigur á BÍ/Bolungarvík í 3. umferð 1. deildar karla í fótbolta í dag en þetta var fyrsta tap Vestfirðinga í deildinni í sumar. Grindvíkingar unnu aftur á móti sinn annan lei... Meira
Íslenski boltinn 24. maí 2013 21:06

Aron og Hjörtur sáu um Fjölni

Aron Elís Þrándarson gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu fyrir Víking í kvöld er liðið kjöldró Fjölni, 1-5, í 1. deildinni. Meira
Íslenski boltinn 24. maí 2013 12:23

Ólafur best klæddi þjálfarinn | Þorvaldur neðstur

Sindri Snær Jensson, markvörður og sérfræðingur um tísku, hefur tekið út klæðaburð þjálfaranna í Pepsi-deild karla. Meira
Íslenski boltinn 24. maí 2013 11:30

Kannski vont fyrir meðalmanneskju

Anna Garðarsdóttir reiknar ekki með að geta spilað með liði sínu á ný fyrr en á seinni hluta tímabilsins í Pepsi-deild kvenna. Meira
Íslenski boltinn 24. maí 2013 10:00

Afríka er brandari sem er löngu búinn

Kjartan Atli Kjartansson, leikmaður körfuboltaliðs Stjörnunnar og knattspyrnuliðs Álftaness, segir að leikmenn neðri deilda knattspyrnunnar kvíði því að mæta liði Afríku. Meira
Íslenski boltinn 24. maí 2013 06:45

Byrjar betur en forverarnir

Róbert Örn Óskarsson fékk stóra tækifærið hjá Heimi Guðjónssyni, þjálfara FH, þegar Gunnleifur Gunnleifsson leitaði á ný mið. Róbert er besti leikmaður 4. umferðar Pepsi-deildarinnar að mati Fréttabla... Meira
Íslenski boltinn 24. maí 2013 06:30

Framtíðin liggur í gervigrasvöllum

Ekki er hægt að spila á Akureyrarvelli í bráð frekar en öðrum knattspyrnuvöllum á Norðurlandi. Formaður knattspyrnudeildar KA segir löngu tímabært að gervigrasvæða íslenska knattspyrnuvelli, ekki aðei... Meira
Íslenski boltinn 23. maí 2013 21:14

Haukar og Tindastóll með góða sigra

Haukar unnu góðan sigur á Selfossi, 2-3, en tveir leikir fóru fram í 1. deildinni í kvöld. Meira
Íslenski boltinn 23. maí 2013 20:10

Rætt um að fá Phil Neville til ÍBV

Bradley Simmonds hefur farið ágætlega af stað með ÍBV í Pepsi-deildinni. Þessi 19 ára strákur, sem áður var á mála hjá QPR, er ánægður með lífið á Íslandi. Meira
Íslenski boltinn 23. maí 2013 17:12

Guðjón Heiðar leggur skóna á hilluna

Skagamaðurinn Guðjón Heiðar Sveinsson hefur spilað sinn síðasta leik á ferlinum því þessi vinstri fótar bakvörður hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Hann mun því ekki leika meira með Skagaliðinu... Meira
Íslenski boltinn 23. maí 2013 12:39

Íslenski Konninn slær í gegn

"Þetta er stuðningsmannalag Þróttar til heiðurs dyggasta stuðningsmanni félagsins, Konna,“ segir Sólmundur Hólm Sólmundarson, betur þekkur sem Sóli. Meira
Íslenski boltinn 23. maí 2013 12:15

Gaui Þórðar hafnaði erlendu liði í janúar

Guðjón Þórðarson hefur verið án þjálfarastarfs síðan honum var sagt upp störfum hjá Grindavík síðastliðið haust. Meira
Íslenski boltinn 23. maí 2013 09:06

Völlurinn er handónýtur

Knattspyrnuvellir á Norðurlandi koma illa undan vetri og liggja margir undir kalskemmdum, eins og sést greinilega á meðfylgjandi myndum sem Jóhann G. Kristinsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, tók á ... Meira
Íslenski boltinn 23. maí 2013 06:45

Vítin til vandræða

Vítaskyttur Pepsi-deildarliðanna hafa aðeins skorað úr tveimur af sjö vítaspyrnum sem dæmdar hafa verið í fyrstu fjórum umferðunum í sumar. Þetta er langversta byrjun vítaskyttna síðan deildin varð tó... Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 22:30

Þetta víti er stútfullt af stælum

Leikmönnum Pepsi-deildar karla hefur gengið afar illa að nýta vítaspyrnur sínar í sumar og vítin voru eitt af umræðuefnunum í Pepsimörkunum í gær. Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 22:01

Greta Mjöll: Ég fékk bara eitt stykki hnefa í andlitið

Greta Mjöll Samúelsdóttir, fyrirliði Breiðabliks endaði síðan leikinn á móti Selfossi í kvöld á því að vera borin útaf eftir slæmt höfuðhögg. Breiðablik vann leikinn 4-1 og er með fullt hús eftir fjór... Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 16:51

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Selfoss 4-1 | Blikar áfram á sigurbraut

Breiðablik hélt áfram sigurgöngu sinni í Pepsi-deild kvenna í kvöld þegar liðið vann 4-1 sigur á Selfossi á Kópavogsvellinum. Breiðablik hefur unnið fyrstu fjóra leiki sína í sumar og er á toppnum í d... Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 21:55

Hrikaleg mistök hjá Birnu Berg | Myndband

Hinn stórefnilegi markvörður FH, Birna Berg Haraldsdóttir, gerði sig seka um skelfileg mistök í leiknum gegn Aftureldingu í kvöld. Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 17:08

Auðvelt hjá FH og Stjörnunni | Podovac skoraði fjögur mörk

FH vann sinn fyrsta sigur í Pepsi-deild kvenna í kvöld er liðið lagði Aftureldingu. Danka Podovac fór á kostum í liði Stjörnunnar gegn HK/Víkingi og skoraði fjögur mörk. Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 20:30

Varasamt að ná í 1. deildarkónga

Strákarnir í Pepsimörkunum ræddu muninn á því að spila í 1. deildinni og Pepsi-deildinni í þætti gærkvöldsins. Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 16:57

Meistararnir misstu niður tveggja marka forskot

Fyrstu tveimur leikjum kvöldsins í Pepsi-deild kvenna er lokið. Jafntefli var í stórleiknum fyrir norðan en ÍBV vann öruggan sigur á Þrótti. Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 16:45

Víðir skoraði flottasta markið í 3. umferð

Eyjamaðurinn Víðir Þorvarðarson skoraði flottasta markið í 3. umferð Pepsi-deildar karla í fótbolta að mati lesenda Vísis en kosið var á milli fimm fallegustu markanna hér inn á Vísi. Lesendur Vísis f... Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 14:30

Markaregn fjórðu umferðar

Tólf mörk voru skoruð í fjórðu umferð Pepsi-deildar karla en það má sjá þau öll í meðfylgjandi myndbandi. Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 09:00

Marksækinn og söngelskur Skagamaður

Hallur Flosason skoraði annað marka ÍA í 2-0 sigri á Fram í gær en ef til vill vita færri að hann er einnig stórefnilegur tónlistarmaður. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Sport / Fótbolti / Íslenski boltinn / Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍA - KR - 3-2
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000