Sport

UFC 191: Tekst Johnson að verja titilinn eina ferðina enn?

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Úr vigtuninni frá því í gær.
Úr vigtuninni frá því í gær. Vísir/Getty
UFC 191 fer fram í kvöld þar sem Demetrious Johnson ver fluguvigtartitil sinn gegn John Dodson.  Þá munu hnefar fljúga þegar þungavigtarmennirnir Frank Mir og Andrei Arlovski mætast á þessu spennandi kvöldi.

Þeir Demetrious Johnson og John Dodson mættust fyrst í janúar 2013. Þar fór meistarinn Johnson með sigur af hólmi í frábærum bardaga. Dodson tókst þó að slá meistarann þrívegis niður og hefur harma að hefna í kvöld.

Sjá einnig: Gamli bardaginn – Demetrious Johnson gegn John Dodson

Demetrious Johnson er einn besti bardagamaður heims pund fyrir pund. Hann er stöðugt að bæta sig og virðist alltaf vera einu (eða nokkrum) skrefum á undan andstæðingum sínum.

Dodson er þó sá sem hefur komist næst því að sigra Johnson. Það hafa því margir beðið eftir þessum bardaga af mikilli eftirvæntingu og loksins berjast þeir aftur í kvöld. Þetta verður viðburðarrík vika fyrir Dodson en auk þess að berjast um titil í kvöld eignaðist hann sitt fyrsta barn í vikunni.

Hinir 36 ára gömlu Frank Mir og Andrei Arlovski mætast í næstsíðasta bardaga kvöldsins. Báðir hafa þeir endurvakið feril sinn eftir dapurt gengi. Nú er Arlovski mögulega einum bardaga frá titilbardaga sem þótti fráleit hugmynd fyrir tveimur árum síðan.

Arlovski mun leitast eftir rothögginu en hann á flesta sigra eftir rothögg í sögu UFC eða níu talsins. Mir er aftur á móti hættulegri í gólfinu og er með níu sigra eftir uppgjafartök.

Bardagakvöldið verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst bein útsending kl 2. Eftirtaldir fimm bardagar verða á dagskrá

Titilbardagi í fluguvigt: Demetrious Johnson gegn John Dodson

Þungavigt: Andrei Arlovski gegn Frank Mir

Léttþungavigt: Anthony Johnson gegn Jimi Manuwa

Léttþungavigt: Jan Blachowicz gegn Corey Anderson

Strávigt kvenna: Paige VanZant gegn Alex Chambers

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×