Sport

Tvö á palli í Skotlandi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
María Rún Gunnlaugsdóttir og Ingi Rúnar Kristinsson.
María Rún Gunnlaugsdóttir og Ingi Rúnar Kristinsson. Mynd/FRÍ
FH-ingurinn María Rún Gunnlaugsdóttir og Blikinn Ingi Rúnar Kristinsson náðu bestum árangri Íslendinga á skoska innanhússmeistaramótinu í fjölþrautum.

Báðum tókst að komast á verðlaunapall og tryggja sér bronsverðlaun á mótinu í ár. María Rún var eina konan í hópnum og bætti sinn fyrri árangur í fimmtarþraut. Ingi Rúnar var nokkuð frá sínu besta en árangur hans dugði samt til að ná þriðja sæti í sjöþraut karla.

María Rún Gunnlaugsdóttir varð Íslandsmeistari á dögunum og fékk þá 3869 stig sem var þá persónulegt met. María Rún gerði betur núna og náði alls í 71 stigi meira eða 3940 stig. Hún er núna komin mjög nálægt fjögur þúsunda múrnum.

María Rún fékk núna fleiri stig fyrir langstökkið, kúluvarpið, hástö0kkið og 800 metra hlaupið eða fyrir allar greinarnar í keppninni nema 60 metra grindarhlaupið.

Ingi Rúnar Kristinsson varð í öðru sæti á eftir Tristan Freyr Jónssyni á Íslandsmótinu á dögunum. Hann fékk nokkuð færri stig í Skotlandi (5229 stig) en á Íslandsmótinu í Laugardalnum (5327 stig)

Íslandsmeistarinn Tristan Freyr Jónsson var með á mótinu í Skotlandi en hætti keppni eftir tvær greinar. Ísak Óli Traustason UMSS bætti sinn árangur umtalsvert á mótinu og Ari Sigþór Eiríksson Breiðabliki bætti sig einnig.

María Rún Gunnlaugsdóttir og greinarnar hennar á mótinu:

60 metra grindarhlaup: 5. sæti (9,01 sekúnda - 908 stig)

Langstökk: 3. sæti (5,79 metrar - 786 stig)

Kúluvarp: 3. sæti (11,47 metrar - 626 stig)

Hástökk: 3. sæti (1,68 metrar - 830 stig)

800 metra hlaup: 3. sæti (2:22.51 mínútur - 790 stig)

Lokastaðan í fimmtarþraut kvenna:

1. Joanna Rowland 4103 stig

2. Jessica Tappin 4039 stig

3. María Rún Gunnlaugsdóttir 3940 stig

4. Danielle McGifford 3796 stig

5. Lucy Chappell 3780 stig



Ingi Rúnar Kristinsson og greinarnar hans á mótinu:

60 metra hlaup: 4. sæti (7,24 sekúndur - 799 stig)

60 metra grindarhlaup: 4. sæti (8.84 sekúndur - 781 stig)

Hástökk: 4. sæti (1.87 metrar - 687 stig)

Kúluvarp: 1. sæti (14.22 metrar - 742 stig)

Langstökk: 6. sæti (6,63 metrar - 727 stig)

Stangarstökk: 3. sæti (4,27 metrar - 693 stig)

1000 metra hlaup: 3. sæti (2:46.77 - 800 stig)

Lokastaðan í sjöþraut karla:

1. Ben Gregory 5834 stig

2. Andrew Murphy 5402 stig

3. Ingi Rúnar Kristinsson 5229 stig

4. Elliot Thompson 5006 stig

5. Ísak Óli Traustason 4929 stig

6. Kaspars Kazemaks 4643 stig

7. Ari Sigþór Eiríksson 4546 stig

8. Gordon Belch 3718 stig

9. Brad Cleary 2100 stig




Fleiri fréttir

Sjá meira


×