Körfubolti

Tvíburarnir kunnu ekki að meta dónalegt sms til mömmu

Tvíbbarnir eru í vondum málum.
Tvíbbarnir eru í vondum málum. vísir/getty
NBA-tvíburarnir Marcus og Markieff Morris, leikmenn Phoenix Suns, eru ekkert í allt of góðum málum.

Það er nefnilega búið að kæra þá fyrir árás sem átti sér stað eftir framhaldsskólaleik í janúar.

Morris-tvíburarnir eru sakaðir um að hafa gengið í skrokk á manni ásamt þrem öðrum.

Fórnarlambið var nokkuð illa leikið og þurfti að fara á spítala.

Átökin áttu uppruna sinn í því að einhver, væntanlega fórnarlambið, hefði sent móður tvíburanna dónalegt sms og ákveðið var að svara fyrir það.

Málið verður tekið fyrir þann 7. maí.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×