Tvíburar sameinast á ný hjá Blackburn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. janúar 2012 11:45 Martin Olsson í leik með Blackburn. Mynd/Nordic Photos/Getty
Sænsku tvíburarnir Martin og Marcus Olsson eru orðnir liðsfélagar á nýjan leik eftir að enska úrvalsdeildarfélagið Blackburn Rovers ákvað að semja við Marcus Olsson. Martin Olsson hefur spilað með Blackburn frá 2006. Marcus Olsson hefur alla tíð spilað í sænsku deildinni með Halmstad og var í viðræðum við Djurgarden og Viking Stavanger. Hann hefur nú skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við Blackburn. Marcus sagði að bróðir sinn hafi verið í sjokki þegar hann heyrði fyrst af því að þeir yrðu samherjar á ný. „Það var mjög óvænt þegar ég frétti af áhuga þeirra en ég þurfti ekki að hugsa mig lengi um," sagði Marcus við Aftonbladet en eru þeir að keppa um sömu stöðu? „Hann er vinstri bakvörður en ég er vinstri kantmaður. Við blómstrum saman inn á vellinum og það verður ekkert vandamál. Við höfum reyndar ekki spilað saman síðan í sextán ára liðinu hjá Högaborg," sagði Marcus. Olsson-tvíburarnir eru fæddir 17. maí 1988 í Gävle í Svíþjóð og verða því 24 ára í vor. Faðir þeirra er sænskur en móðir þeirra var frá Kenía. Jessica systir þeirra er síðan kærasta þýska körfuboltamannsins Dirk Nowitzki.
Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Sjá meira