Handbolti

Tveir sáu rautt í jafnteflisleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Anton
Haukar og Stjarnan skildu jöfn, 26-26, í Olísdeild karla í kvöld en mikið gekk á á lokamínútum leiksins.

Haukar höfðu tveggja marka forystu í hálfleik, 13-11, en Stjörnumenn voru tveimur mörkum yfir þegar lítið var eftir af leiknum. Heimamenn skoruðu þó jöfnunarmarkið á lokasekúndunum.

Það gekk þó mikið í lokin. Markvörðurinn Sigurður Ingiberg Ólafsson, Egill Magnússon og Víglundur Jarl Þórsson fengu allir tveggja mínútna brottvísun og þá var þeim Þóri Ólafssyni og Ara Magnúsi Þorgeirssyni vikið af velli með rautt spjald.

Stjarnan og Haukar eru bæði með þrjú stig eftir fjórar umferðir í 6.-7. sæti deildarinnar.

Haukar - stjarnan 26-26 (13-11)

Mörk Hauka: Einar Pétur Pétursson 7, Adam Haukur Baumruk, Árni Steinn Steinþórsson 4, Þórarinn Leví Traustason 4, Þröstur Þráinsson 3, Heimir Óli Heimisson 2, Jón Þ. Jóhannsson 1.

Mörk Stjörnunnar: Hilmar Pálsson 8, Egill Magnússon 7, Þórir Ólafsson 4, Andri Hjartar Grétarsson 4, Ari Magnús Þorgeirsson 2, Víglundur Jarl Þórsson 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×